Landspítali
Landspítali
Landspítali

Sjúkraliði á endurhæfingardeild Grensási

Laust er til umsóknar starf sjúkraliða á endurhæfingardeild Grensási. Við bjóðum jafnt velkominn reynslumikinn sem og nýútskrifaðan sjúkraliða í okkar góða hóp því við teljum gott að hafa breidd í þekkingu og reynslu.

Á Grensási er veitt frumendurhæfing eftir erfið veikindi og slys. Hjúkrunin er fjölbreytt og áhersla er á þverfaglega samvinnu. Starfsánægja er mikil og starfsmannavelta lítil, þetta er því dýrmætt tækifæri fyrir sjúkraliða til að kynnast öflugri teymisvinnu í þverfaglegu umhverfi. Síðastliðin ár hefur mikil uppbygging verið í starfseminni, þjálfunarsundlaug verið endurgerð og hannaður meðferðargarður við húsið. Glæsileg nýbygging verður opnuð árið 2027 og verður öll aðstaða þar eins og best verður á kosið.

Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi og er starfshlutfall 80-100%.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hjúkrun einstaklinga í endurhæfingu í samvinnu við aðra fagaðila
  • Virkur þátttakandi í teymisvinnu
  • Þátttaka í verkefnavinnu tengdri hjúkrun ákveðinna sjúklingahópa
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi
  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfileikar
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta áskilin
Auglýsing birt8. september 2026
Umsóknarfrestur23. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.SjúkraliðiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar