Landspítali
Landspítali
Landspítali

Sérfræðilæknir í brjóstholsskurðlækningum

Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í brjóstholsskurðlækningum. Um er að ræða 2-3 stöður þar sem starfshlutfall er 25-100%. Upphafsdagur ráðningar er 1. janúar 2027 eða eftir nánara samkomulagi.

Leitað er eftir metnaðarfullum sérfræðilækni til að annast sérhæfða meðferð og eftirfylgd sjúklinga sérgreinarinnar.

Við hjarta- og lungnaskurðlækningar starfa sérfræðilæknar í öflugum þverfaglegum teymum og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir spítalans. Sérgreinin býður upp á líflegt og krefjandi starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða aðlögun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sérfræðistörf í samráði við yfirlækni sérgreinarinnar, s.s. greining, meðferð og eftirfylgd sjúklinga með vandamál er tengjast brjóstholsskurðlækningum, þ.m.t. vinna á skurðstofu, legudeild, gjörgæslu, göngudeild og samráðskvaðningar við sérgreinar Landspítala og einnig samráðskvaðningar annarsstaðar að af landinu
  • Þátttaka í gæsluvöktum samkvæmt vaktafyrirkomulagi sérgreinarinnar
  • Stefnumótun, þróun og gæðastarf í samráði við yfirlækni sérgreinarinnar og forstöðulækni
  • Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samráði við yfirlækni hjarta- og lungnaskurðlækninga
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt sérfræðileyfi brjóstholsskurðlækningum
  • Umfangsmikil reynsla í lungnaskurðlækningum er kostur
  • Staðgóð þekking í fræðigreininni, reynsla og hæfni til að framkvæma algengustu brjóstholsskurðaðgerðir án handleiðslu
  • Frekari sérhæfing í brjóstholsskurðlækningum er æskileg en ekki skilyrði
  • Sérfræðiviðurkenning í fleiri tengdum sérgreinum er æskileg en ekki skilyrði
  • Reynsla í kennslu og vísindavinnu er æskileg en ekki skilyrði
  • Vilji til frekari sérhæfingar í samráði við yfirlækni hjarta- og lungnaskurðlækninga
  • Góð samskiptahæfni við sjúklinga, aðstandendur og samstarfsfólk og hæfileiki til að vinna í teymi og í löngum vinnulotum
Auglýsing birt4. september 2026
Umsóknarfrestur5. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar