Landspítali
Landspítali
Landspítali

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á Laugarásinn meðferðargeðdeild

Laugarásinn leitar nú að áhugasömum hjúkrunarfræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra. Deildin sinnir bæði legudeildar- og dagdeildarþjónustu og er kjörinn starfsvettvangur fyrir öflugan og metnaðarfullan hjúkrunarfræðing sem vill þróa þekkingu sína og starfsreynslu.

Laugarásinn er sérhæfð meðferðargeðdeild fyrir einstaklinga á aldrinum 18-35 ára sem hafa nýlega greinst með geðrofssjúkdóm. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem gefst tækifæri til að taka þátt í þróun þjónustu og starfsemi öflugrar einingar. Deildin sinnir um 100 einstaklingum hverju sinni. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu, virkt samstarf við aðstandendur og þverfaglega teymisvinnu.

Á Laugarásnum gefst tækifæri til að vinna með einstaklingum á mikilvægum tímamótum í lífi sínu og hafa áhrif á meðferð þeirra og bataferli. Starfsumhverfið einkennist af fagmennsku, góðum starfsanda og fjölbreyttum verkefnum. Mikil áhersla er lögð á starfsþróun og fær starfsfólk meðal annars þjálfun og handleiðslu í áhugahvetjandi samtalstækni og grunnþáttum hugrænnar atferlismeðferðar.

Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með hjúkrunardeildarstjóra að skipulagningu hjúkrunar, þróun starfseminnar og innleiðingu nýjunga. Starfið felur einnig í sér þátttöku í verkefnum tengdum stjórnun, mannauði, þjónustu og gæðum.

Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á stjórnun, faglegri þróun og umbótastarfi. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri samskiptahæfni, frumkvæði og sveigjanleika og hafa áhuga á teymisvinnu og þróun þjónustunnar.

Starfshlutfall er 100% og er fyrst og fremst um dagvinnu að ræða. Bakvaktir tilheyra starfinu eftir sex mánaða reynslutíma. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir.

Starfið er laust frá 15. september 2026 eða eftir samkomulagi.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Lilju Dögg, hjúkrunardeildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
Reynsla af forystu er kostur
Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur
Einlægur áhugi á geðhjúkrun og að vinna með ungu fólki og fjölskyldum þeirra
Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
Jákvætt hugarfar og framúrskarandi hæfni í samskiptum og teymisvinnu
Færni til að vinna sjálfstætt, skipuleggja og forgangsraða verkefnum
Leiðtogahæfni og umbótamiðuð hugsun
Góð íslensku- og tölvukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur í samráði við hjúkrunardeildarstjóra að skipulagningu á starfsemi deildar
Ber ábyrgð á verkefnum sem hjúkrunardeildarstjóri felur honum
Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í hjúkrun
Virk þátttaka í málastjórn og þverfaglegri þjónustu fyrir þjónustuþega og aðstandendur
Ber ábyrgð á starfsemi, mönnun og rekstri deildar í fjarveru og í samráði við hjúkrunardeildarstjóra
Er ábyrgur fyrir skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar í fjarveru hjúkrunardeildarstjóra
Vinnur náið með hjúkrunardeildarstjóra að mótun liðsheildar ásamt því að leiða umbótaverkefni og teymisvinnu
Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur11. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (26)
Landspítali
Atvinnuráðgjafi í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á líknardeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar - Göngudeild hjartagáttar
Landspítali
Landspítali
Sálfræðingur á endurhæfingardeild Grensási
Landspítali
Landspítali
Þjónustustjóri á krabbameinsmiðstöð - ný staða
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Blóðbankinn Kringlan
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild skurðlækninga Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Blóðbankinn Glerártorgi
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á sérhæfðri endurhæfingardeild aldraðra
Landspítali
Landspítali
Sótthreinsitæknir eða sérhæfður starfsmaður í skol á skurðstofu Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar á 3. eða 4. ári með áhuga á geðhjúkrun - spennandi tækifæri á legudeild geðrofssjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar - Gjörgæsla í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Starfsmaður í býtibúr og ritarastarf - hlutastarf
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í þróunar og umbótaverkefnum í hjartaþjónustu
Landspítali
Landspítali
Starf í klínískri erfðaráðgjöf
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi - Spennandi störf á lungnadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar - Spennandi tækifæri á lungnadeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir á Erfða- og sameindalæknisfræðideild
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Yfirlæknir sýkla- og veirufræðideildar
Landspítali