

Hjúkrunarnemar á 3. eða 4. ári með áhuga á geðhjúkrun - spennandi tækifæri á legudeild geðrofssjúkdóma
Ertu hjúkrunarnemi og hefur áhuga á geðhjúkrun?
Við leitum eftir áhugasömum hjúkrunarnemum sem eru að fara á þriðja eða fjórða ár í hjúkrunarfræði.
Legudeild geðrofssjúkdóma sinnir greiningu, meðferð og endurhæfingu fólks með geðrofssjúkdóma. Deildin er 16 rúma, 10 ætluð einstaklingum með bráð veikindi og 6 ætluð til endurhæfingar. Á deildinni er boðið upp á samtalsmeðferð, virkni, fræðslu, lyfjameðferð, ásamt því að mikil áhersla er lögð á fjölskylduhjúkrun. Markmið meðferðarvinnu er að auka lífsgæði og valdefla sjúklinga, draga úr hamlandi geðrofseinkennum og þjálfa upp bjargráð til að lifa með geðrofssjúkdóm.
Sérstök áhersla er lögð á starfsþróun, fagmennsku, þverfaglega samvinnu og góðan starfsanda. Boðið er upp á einstaklingsmiðaða og góða aðlögun í starfi. Starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi og tekið er tillit til námsins við skipulag vakta.
Enska













































