Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Hlutastarf á skammtímaheimili fólks með fötlun

Velferðarsvið Kópavogs óskar eftir starfsfólki, 18 ára eða eldri til starfa á skammtímaheimili fyrir ungt fólk með fötlun í Kópavogi. Á heimilinu sækja tíu einstaklingar þjónustu, fimm í einu og þar er lögð áhersla á að þjónustunotendur búi sig undir flutninga að heiman. Starfið felst í því að veita aðstoð og leiðbeiningar við allt er lýtur að daglegu lífi þjónustunotenda bæði inni á heimilinu og utan þess.

Um er að ræða vaktavinnu í um 30% starfshlutfalli, eða samkvæmt nánara samkomulagi. Starfið felur í sér vinnu eina helgi í mánuði á morgun-, milli- og kvöldvöktum, auk stakra kvöld- og mögulega næturvakta á virkum dögum eftir þörfum.

Gott er ef starfsmaður geti byrjað sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingsmiðaður, persónulegur stuðningur við þjónustunotendur.
  • Vera þjónustunotendum góð fyrirmynd.
  • Stuðla að auknu sjálfstæði þjónustunotenda.
  • Almennt heimilishald.
  • Samvinna við starfsmenn, aðstandendur og aðra þjónustuaðila.
  • Fjölbreytt verkefni innan og utan heimilis.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Félagsliði, nám á framhaldsskólastigi eða töluverð reynsla af vinnu með fötluðu fólki.
  • Góð íslenskukunnátta nauðsynleg.
  • Hæfni í samskiptum og samstarfi.
  • Frumkvæði, framtakssemi og sjálfstæði.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
  • Geta til að starfa undir álagi.
  • Geta til að aðlagast breyttum aðstæðum og tileinka sér nýjar nálganir.
Auglýsing birt12. ágúst 2026
Umsóknarfrestur26. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hrauntunga 54, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar