Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Þroskaþjálfi í Virknimiðstöð Reykjavíkur

Vilt þú taka þátt í að móta og þróa þjónustu fyrir fatlað fólk?

Virknimiðstöð Reykjavíkur leitar að öflugum þroskaþjálfa sem hefur áhuga á valdeflandi starfi og vill taka virkan þátt í að þróa þjónustu þar sem sjálfræði, þátttaka og lífsgæði eru í forgrunni.

Við leitum að einstaklingi sem vill nýta fagþekkingu sína í fjölbreyttu og skapandi starfsumhverfi og hafa áhrif á þróun starfseminnar í samstarfi við þátttakendur, samstarfsfólk og stjórnendur.

Virknimiðstöð Reykjavíkur samanstendur af Smiðjunni, Opus og Iðjubergi, ásamt smíðastofunni SmíRey, tónlistarhúsi og listasmiðju. Starfsemin byggir á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og þjónandi leiðsagnar, með áherslu á skapandi, valdeflandi og styðjandi umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita valdeflandi og einstaklingsmiðaðan stuðning með áherslu á sjálfræði, þátttöku og aukin lífsgæði.
  • Taka virkan þátt í faglegri mótun og þróun starfseminnar.
  • Vera leiðandi í innleiðingu og eftirfylgd faglegra vinnubragða og hugmyndafræði.
  • Vinna að gerð, framkvæmd og endurskoðun einstaklingsbundinna áætlana.
  • Veita samstarfsfólki faglega ráðgjöf, fræðslu og leiðsögn.
  • Taka þátt í og leiða teymisvinnu og þróunarverkefni.
  • Nýta fagþekkingu til að greina tækifæri til umbóta og þróunar þjónustunnar.
  • Eiga samstarf við þátttakendur, samstarfsfólk, aðstandendur og aðra fagaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki.
  • Þekking og reynsla af Tákn með tali og öðrum óhefðbundnum tjáskiptaleiðum er æskileg.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og áhugi á faglegri þróun.
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
  • 36 stunda vinnuviku
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Aðgangur að sundlaugum, söfnum og bókasöfnum Reykjavíkur
Auglýsing birt12. ágúst 2026
Umsóknarfrestur27. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skeifan 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.Þolinmæði
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar