Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Virkniþjálfi í BORGUM, félags og menningamiðstöð

Hefur þú áhuga á að taka þátt í að þróa öflugt félagsstarf í Austurhverfinu? Óskað er eftir virkniþjálfa í fullt starf.

Vinna að skipulagningu og framkvæmd félagsstarfs í félagsmiðstöðinni Borgum, sem eru í stöðugri þróun, í góðu samráði við þátttakendur sem eru á öllum aldri. Virkniþjálfi óskast í 100% stöðu og mun veita stuðning við sjálfsprottið félagsstarf. Um framtíðarstarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulagning, undirbúningur og framkvæmd félagsstarfs í samráði við þátttakendur, notendaráð og samstarfsfólk.
  • Virkja hugmyndir sem upp koma með hugmyndafræði um virkni að leiðarljósi.
  • Lögð er áhersla á metnað og áhuga á að takast á við ný verkefni í afar spennandi vinnuumhverfi þar sem lífsgleði fær að njóta sín.
  • Stuðningur og skipulagning við félagsstarfið og samstarf við þjónustuþega.
  • Sér meðal annars um auglýsingar, samfélagsmiðla, utanumhald verkefna og samstarf til eflingar félagsauðs.
  • Önnur þau verkefni sem yfirmenn fela honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í Tómstunda og félagsmálafræði eða önnur sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Hæfni í samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Þekking og reynsla af félagsstarfi, þjónustu við fólk og verkefnastjórnun er æskileg.
  • Íslenskukunnátta B2 í samræmi við samevrópskan tungumálaramma.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Auglýsing birt6. ágúst 2026
Umsóknarfrestur19. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Spöngin 43, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar