Kringlumýri frístundamiðstöð
Kringlumýri frístundamiðstöð

Stuðningsfulltrúi í frístundaheimilið Guluhlíð og félagsmiðstöðvarnar Heklu og Öskju

Frístundaheimilið Gulahlíð og félagsmiðstöðvarnar Hekla og Askja óska eftir að ráða stuðningsfulltrúa veturinn 2026-2027. Markmið frístundastarfs er að þjálfa félags- og samskiptafærni barna- og unglinga í gegnum leik og starf. Staðirnir standa fyrir frítímastarfi, að skóla loknum og þjónusta börn og unglinga úr Klettaskóla/Korpuskóla.. Klettaskóli/Korpuskóli er sérskóli fyrir börn og unglinga með fötlun.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Í boði er 30-50% hlutastarf eftir hádegi á virkum dögum kl. 13:30-17. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-16 ára börn og unglinga
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Áhugi á að vinna með börnum og unglingum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði.
  • Færni í samskiptum.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í frístundastarfi.
  • Íslenskukunnátta B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

 

Auglýsing birt24. júlí 2026
Umsóknarfrestur10. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar