

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Urriðaból I er sex deilda leikskóli staðsettur í Kauptúni 5 í Garðabæ. Í leikskólanum dvelja börn á aldrinum 1 árs til 6 ára.
Urriðaból 1 er leikskóli á heilsubraut og vinnum við markvisst eftir Heilsustefnunni, sem leggur áherslu á heilsu og lífsgæði barna, starfsfólks og nærsamfélagsins. Leikskólinn er rekinn af Skólar ehf., sem hefur yfir 25 ára reynslu af rekstri heilsuleikskóla í Garðabæ, Kópavogi, Reykjanesbæ og Reykjavík.
Einkunnarorð okkar eru: „Heilbrigð sál í hraustum líkama.“
Deildarstjóri óskast til starfa sem fyrst eða eftir samkomulagi. Við leitum að metnaðarfullum leikskólakennara sem vill taka þátt í að þróa og efla leikskólastarfið í fjölbreyttum og skemmtilegum hópi starfsmanna.
Við bjóðum meðal annars upp á:
Jákvætt og styðjandi starfsumhverfi.
Öflugt samstarf og góðan starfsanda.
Tækifæri til starfsþróunar og endurmenntunar.
Nánari upplýsingar veita:
Heiðar Örn Kristjánsson, leikskólastjóri
📧 [email protected]
Hjördís Diljá Gunnlaugsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri
📧 [email protected]
📞 Sími: 570-4920
Við hlökkum til að heyra frá öflugum einstaklingi sem vill taka þátt í að skapa börnum öruggt, heilbrigt og uppbyggilegt námsumhverfi í Urriðabóli I.
- Vinnur að og ber ábyrgð á uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á miðlun upplýsinga
- Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og að öll börn fái kennslu og umönnun við hæfi
- Ber ábyrgð á foreldrasamvinnu
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
- Leyfisbréf kennara
- Reynslu af leikskólastarfi
- Áhugi á að vinna með börnum
- Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar
- Vilji til að taka þátt í þróun á faglegu starfi og láta til sín taka
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
- Lausnarmiðun
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Heilsuhvetjandi starfsumhverfi
- Samgöngustyrkur
- Viðverustefna
- Heilsustyrkur
- Vinnustytting
- 3 heilsusamlegar máltíðir á dag
- Starfsmannaafsláttur á leikskólagjöldum
Íslenska










