

Holtakot - leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir leikskólakennara í 100% starfshlutfall.
Leikskólinn er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, listsköpun og hollt matarræði. Skólinn er Grænfánaskóli og starfar eftir "Uppeldi til ábyrgðar".
Einkunnarorð skólans eru: Jákvæðni, virðing og öryggi. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf.
Stefna leikskólans í starfsmannahaldi er að í skólanum starfi uppeldismenntaðir starfsmenn af báðum kynjum. Heimasíða leikskólans http://www.holtakot.is/
- Vinna að uppeldi og menntun barna undir stjórn deildarstjóra
- Vinna að faglegu starfi deildar
- Tekur þátt í foreldrasamvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Reynsla af starfi í leikskóla eða starfi með börnum er æskileg
- Ánægja af því að starfa með börnum
- Áhugi á heilsueflandi leikskólastarfi og hreyfingu
- Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Hlunnindi fyrir starfsmenn leikskóla:
- Vinnuskylda í fullu starfi er 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrar-, páska- og jólafrís
- Leikskólinn er lokaður í dymbilviku og 2. janúar vegna dreifingar vinnutíma starfsfólks
- Opnunartími leikskólans er 7:30 - 16:30 mánudag til fimmtudag og 7:30- 16:00 á föstudögum
- Fimm skipulagsdagar á ári sem eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
- Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
- 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
- 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:
- Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Íslenska










