Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness

Deildarstjóri Leikskólastigs (Aðstoðarleikskólastjóri)

Barnaskóli Kársness er nýr skóli sem saman stendur af leikskólastigi (1-5 ára ) og yngsta stigi grunnskóla ásamt frístund (6 – 10 ára). Skólabyggingin er öll hin glæsilegasta sem skapar spennandi tækifæri í skólastarfi fyrir um 60-80 leikskólabörn og um 300 nemendur í 1.-4. bekk.
Leitað er að öflugum og metnaðarfullum Deildarstjóra leikskólastigs (aðstoðarleikskólastjóra) sem hefur góða hæfni í samskiptum og samstarfi, auk vilja til að þróa framsækið skólastarf.

Viðkomandi þarf að vera skipulagður og umbótadrifinn. Leiðtogi leikskólastigs tekur þátt í að byggja upp jákvæðan skólabrag og skapandi skólastarf í stöðugri þróun í samvinnu við börn, starfsfólk, foreldra og skólayfirvöld.

Þetta er starf fyrir framsækinn og árangursdrifinn einstakling sem vill taka þátt í uppbyggingu og mótun skólastarfs í nýjum skóla, börnum til heilla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hefur umsjón með daglegri stjórnun og skipulagningu skólastarfs á leikskólastigi í samstarfi við skólastjóra.
  • Er faglegur leiðtogi og leiðandi aðili í skipulagi faglegs starfs á leikskólastigi.
  • Styður við starfsfólk, stuðlar að góðum starfsanda og eflir samvinnu í starfsmannahópnum.
  • Tekur virkan þátt í foreldrasamstarfi, upplýsingagjöf og kynningu á skólastarfinu.
  • Tekur þátt í launavinnslu, áætlanagerð, skýrslugerð og mati á faglegu starfi eftir því sem við á.
  • Stuðlar að farsæld barna og að starfið sé í samræmi við aðalnámskrá leikskóla, skólanámskrá og verklag skólans.
  • Sinnir öðrum verkefnum er varða stjórnun og faglegt starf á leikskólastigi sem yfirmaður felur.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Sérhæfð hæfni á leikskólastigi, sem felur í sér a.m.k. 90 ECTS námseiningar sem tengjast aðalnámskrá leikskóla og menntunarfræðum leikskóla.
  • Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða æskileg.
  • Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla.
  • Forystuhæfni og góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi.
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Góð tölvukunnátta.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta og færi til að tjá sig bæði í ræðu og riti.
Fríðindi í starfi
  • Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
  • Íþróttastyrkur.
  • Styttri vinnuvika.
  • Frítt fæði.
Auglýsing birt3. júlí 2026
Umsóknarfrestur4. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skólagerði/Kársnesskó 115943, 200 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar