Reykhólahreppur
Reykhólahreppur
Reykhólahreppur

Lausar stöður kennara/leiðbeinenda við Reykhólaskóla

Reykhólahreppur auglýsir til umsóknar þrjár lausar stöður kennara við Reykhólaskóla til kennslu á skólaárinu 2026-2027:

100% staða grunnskólakennara til kennslu á mið- og unglingastigi.

50% staða grunnskólakennara til kennslu á mið- og unglingastigi.

50% staða tónlistarkennara til tónlistarkennslu við skólann.

Til greina kemur að ráða inn leiðbeinendur með reynslu og háskólamenntun sem nýtist í starfi ef ekki fáist kennarar með leyfisbréf til starfa.

Skólinn er samrekinn leik- og grunnskóli með frístund og tónlistardeild. Í samreknum skóla eru um 50 nemendur og þar af um 35 nemendur í grunnskóladeild. Við grunnskóladeild skólans er kennt í námslotum á þremur námstigum, yngsta stigs, miðstigs og unglingastigs með samkennslu bekkjarárganga innan hvers stig. Nánari upplýsingar um skólann er hægt að sjá á www.reykholaskoli.is.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samkennsla á miðstigi og unglingastigi (tvær stöður grunnskólakennara 100% og 50% starf)
  • Tónlistakennsla á öllum stigum grunnskóladeildar (staða tónlistarkennara 50% starf)
  • Teymiskennsla með öllum kennurum skólans eftir þörfum
  • Ber ábyrgð á námi- og velferð nemendahópsins
  • Vinna samkvæmt skólastefnu Reykhólaskóla og Reykhólahrepps
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu eða háskólamenntun sem nýtist í starfi fáist ekki kennaramenntaðir með leyfisbréf til starfa.
  • Metnaður og hæfni til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum með áherslu á samþættingu og leiðsagnarnám
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Reglusemi og samviskusemi
  • Hreint sakavottorð skilyrði
  • Mjög góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. 

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjenda til að gegna starfinu ásamt upplýsingum um meðmælendur auk leyfisbréfs til kennslu sé það fyrir hendi hjá umsækjanda.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hafa verið teknar.

Fríðindi í starfi

Starfsmenn Reykhólaskóla njóta ýmissa fríðinda, þar á meðal flutningastyrks, gjaldfrjáls leikskóla og líkamsræktarstyrks. Svæðið býður upp á einstaka nálægð við náttúru og rólegt, fallegt umhverfi.

Um Reykhólahrepp

Í Reykhólahreppi búa um 250 íbúar og þar af um helmingur í þorpinu á Reykhólum. Reykhólahreppur er á sunnanverðum Vestfjörðum og honum tilheyra Flatey og aðrar Vestureyjar Breiðafjarðar. Svæðið státar af einstakri náttúrufegurð og fjölbreyttu fuglalífi. Reykhólahreppur býr við ríkar auðlindir jarðhita víða um sveitarfélagið og fjölda nýtanlegra gæða til lands og sjávar og býður sveitarfélagið upp á einstök lífsgæði í fallegu fjölskylduvænu umhverfi.

Á Reykhólum er að finna margvíslega þjónustu. Þar er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli, frístund barna og félagsmiðstöð, hjúkrunar- og dvalarheimili Barmahlíðar, sundlaug, tjaldsvæði, íþróttahús og líkamsrækt, heilsugæsla, Báta- og hlunnindasýning og verslun og veitingasala Bakkabúðarinnar auk ýmissar annarrar þjónustu. Þar starfa Þörungaverksmiðjan hf. og saltverksmiðja Norður & Co ehf. Hótel og veitingastaður er einnig rekið í nágrenni Reykhóla í Bjarkalundi.

Umsóknarfrestur er til og með 19. júlí 2026

Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf í ágúst og eigi síðar en 1. september.

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Þór Ragnarsson, sveitarstjóri Reykhólahrepps á netfangið: [email protected] eða í síma 898 0363. Ferilskrá, umsókn og fylgigögn umsóknar má einnig senda á netfangið: [email protected].

Auglýsing birt3. júlí 2026
Umsóknarfrestur19. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykhólaskóli, Skólabraut 1, 380 Reykhólahreppur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar