

Sérkennari í Stekkjaskóla
Stekkjaskóli auglýsir eftir sérkennara í 100% stöðuhlutfall frá og með 1. ágúst 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Leitað er eftir metnaðarfullum kennara sem starfar í nánu samstarfi við annað starfsfólk, í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni, skapandi skólastarf og jákvæða skólamenningu. Í stoðþjónustuteymi skólans starfa nú þegar þéttur hópur fagfólks, s.s. sérkennarar, þroskaþjálfarar, iðjuþjálfi, atferlisfræðingur og uppeldis- og menntunarfræðingar ásamt náms- og starfsráðgjafa og skólafélagsráðgjafa frá hausti. Við skólann starfa einnig góður hópur stuðningsfulltrúa í stuðningsþjónustu við nemendur.
Næsta haust er gert ráð fyrir um 430 nemendum í 1.-9. bekk. Fullsetinn verður skólinn fyrir um 500 nemendur í 1.-10. bekk.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 13.000 íbúar og starfa um 1.100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar
- Skipulagning og aðlögun náms að þörfum nemenda
- Stuðningur við nemendur í daglegu skólastarfi í samstarfi við umsjónarkennara og fagteymi
- Samvinna við foreldra og aðra fagaðila
- Virk þátttaka í faglegu samstarfi og skólaþróun
- Leyfisbréf grunnskólakennara
- Framhaldsmenntun á sviði sérkennslu eða kennslu- og uppeldisfræða er æskileg
- Afbragðs samskiptahæfni
- Útsjónarsemi og sveigjanleiki
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hlýtt og gott viðmót
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
- LOGOS-réttindi kostur
Íslenska










