

Starfsmaður á bókasafn Stekkjaskóla óskast
Stekkjaskóli auglýsir eftir bókasafns-og upplýsingafræðingi/starfsmanni á bókasafn skólans í 80 -100% starfshlutfall frá og með 1. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi. Leitað er eftir metnaðarfullum og hugmyndaríkum starfsmanni sem starfar í nánu samstarfi við skólasamfélagið.
Bókasafn Stekkjaskóla er skapandi námsrými fyrir nemendur skólans og hefur fengið nafnið Hugarheimur. Um er að ræða stórt og bjart rými, með aðstöðu fyrir nemendur til að lesa og læra, upptökuver fyrir hlaðvarp og náms- og kennslurými fyrir smærri hópa. Í starfinu felst m.a. að halda áfram að þróa starfsemi safnsins í samráði við starfsfólk og nemendur.
Stekkjaskóli tók til starfa haustið 2021 og er því að hefja sitt sjötta starfsár. Skólinn leggur m.a. áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni, skapandi skólastarf og jákvæða skólamenningu.
Næsta haust er gert ráð fyrir um 430 nemendum í 1.-9. bekk. Fullsetinn verður skólinn fyrir um 500 nemendur í 1.-10. bekk.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega um 13.000 íbúar og starfa um 1.100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Halda utan um starfsemi bókasafnsins
- Þróa upplýsingaver skólans sem skapandi umhverfi fyrir nám og læsi
- Annast innkaup á nýjum bókum/safnkosti
- Skrá og flokka bókakost safnsins
- Skrá og halda utan um spil skólans og halda utan um útlán þeirra
- Aðstoða nemendur við upplýsingaöflun og bókaval
- Starfa náið með starfsfólki og veita þeim ráðgjöf
- Fræðsla um bókasafns- og upplýsingalæsi
- Þátttaka í lestrarhvetjandi verkefnum
- Þátttaka í þróunarverkefnum skólans
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
- M.A próf í upplýsingafræði eða B.A próf í upplýsingafræði eða önnur menntun og/eða mikil starfsreynsla sem nýtist í starfi
- Þekking á Gegnir/Alma bókasafnskerfi nauðsynleg
- Reynsla og þekking af störfum á bókasafni æskileg
- Nákvæmni í vinnubrögðum
- Brennandi áhugi á starfi með börnum og ungmennum
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
- Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Útsjónarsemi og sveigjanleiki
- Frumkvæði og skipulagshæfileikar
- Mjög góð tölvukunnátta
Íslenska