
Frístundamiðstöðin Tjörnin
Tjörnin er frístundamiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða. Tjörnin býður börnum og unglingum í þessum borgarhluta upp á fjölbreytt félags- og tómstundastarf þar sem áhersla er lögð á forvarnir og að beina þeim inn á braut heilbrigðs og jákvæðs lífernis. Uppbygging þjónustu í frítímanum er ein af kröfum nútímans. Þar á að vera vettvangur tómstunda, menntunar, menningar og uppeldis undir handleiðslu hæfra starfsmanna.
Foreldar eru hvattir til að fylgjast nánar með starfssemi Tjarnarinnar á facebook sem og á heimasíðum hvers frístundaheimilis og félagsmiðstöðvar fyrir sig. Í öllum starfseiningum Tjarnarinnar er unnið með lýðræði, mannréttindi og þátttöku. Í frístundaheimilum eru barnaráð sem hafa það hlutverk að koma skoðunum og hugmyndum barnanna á framfæri og virkja þau í að taka þátt í lýðræðissamfélagi.

Listafólk óskast til starfa í hlutastörf í frístundaheimili Tjarnarinnar.
Ert þú skapandi einstaklingur sem hefur gaman af því að vinna með börnum?
Við leitum að listafólki með áhuga á myndlist, tónlist, leiklist, dansi, hönnun, handverki eða öðrum skapandi greinum til starfa í frístundaheimilum. Um er að ræða hlutastörf sem henta vel samhliða listsköpun, verkefnavinnu eða námi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja og leiða skapandi verkefni og smiðjur.
- Nýta listir og sköpun til að efla sjálfstraust, tjáningu og samkennd barna.
- Vera virkur þátttakandi í daglegu starfi frístundaheimilisins.
- Styðja börn í leik og starfi og stuðla að jákvæðum samskiptum.
- Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi frístundaheimilisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hafa áhuga á að vinna með börnum í skapandi verkefnum
- Búa yfir frumkvæði, jákvæðni og góðri samskiptahæfni.
- Geta unnið bæði sjálfstætt og í teymi.
- Hafa reynslu eða menntun á sviði lista eða skapandi greina
- Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
Samgöngustyrkur, heilsuræktarstyrkur, sund- og menningarkort, aðgangur að stuðnings- og ráðgjafateymi.
Auglýsing birt4. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Frostaskjól 2, 107 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiDansDrifkrafturFagmennskaFrumkvæðiHljóðblöndunHreint sakavottorðHugmyndaauðgiJákvæðniKennslaLagasmíðiLeiklistMannleg samskiptiMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSöngurSveigjanleikiUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)Vinna undir álagiÞjónustulundÞolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Frístundaheimilið Sælukot - starfsmaður
Garðabær

Umsjónarmaður frístundar á Hvanneyri
Borgarbyggð

Frístundaheimilið Álftamýri - starfsmaður
Garðabær

Viltu vera hluti af lifandi vinnustað og starfa í skemmtilegu vinnuumhverfi?
Leikskólar stúdenta

Frístundaleiðbeinandi/ráðgjafi með umsjón
Hitt húsið

Frístundaleiðbeinandi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Skólaliði og frístundaleiðbeinandi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Frístundaleiðbeinandi við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar

Stuðningsfulltrúi í frístundaheimilið Guluhlíð og félagsmiðstöðvarnar Heklu og Öskju
Kringlumýri frístundamiðstöð

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Hellinn
Frístundamiðstöðin Miðberg

Frístundaleiðbeinendur í Vatnsendaskóla
Vatnsendaskóli

Háskólamenntaður starfsmaður óskast í sérskóla
Arnarskóli