

Frístundaleiðbeinandi í Félagsmiðstöðina Hyldýpi í Eyjafjarðarsveit
Laus er staða frístundaleiðbeinanda við Félagsmiðstöðina Hyldýpi í Eyjafjarðarsveit. Hyldýpi heldur úti frístundastarfi fyrir börn og unglinga á mið- og unglingastigi Hrafnagilsskóla. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september 2026. Ráðningartími er til 31. maí 2027.
Opið er þrisvar sinnum í viku fyrir nemendur miðstigs, milli kl. 14 og 16 og 1-2 kvöld í viku fyrir nemendur unglingastigs. Tímafjöldi í eðlilegum mánuði er um 34-36 tímar. Auk viðveru á viðburðum tekur frístundaleiðbeinandi þátt í ferðum félagsmiðstöðvarinnar utan svæðis.
Starfið hefur verið í mikilli þróun og mörg spennandi verkefni framundan. Hyldýpi tekur þátt í samstarfi lítilla félagsmiðstöðva í Eyjafirði og Þingeyjarsveit og er með þeim þátttakandi í alþjóðlegu starfi með samstarfsaðilum frá Danmörku, Þýskalandi og Litháen. Á næstu misserum mun Hyldýpi flytja í nýtt og rúmbetra húsnæði sem mun bjóð upp á skemmtilega þróun starfsins. Hyldýpi starfar í takti við nýsköpunarstefnu Eyjafjarðarsveitar þar sem áherslan mun verða lögð á að aðlaga starfið að áhugasviði þátttakenda og fara nýjar leiðir í þeirri nálgun m.a. í klúbbastarfi.
Laun eru skv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar-Iðju.
Fyrirspurnir má senda á umsjónarmann Hyldýpis, Sunnu Björgu Valsdóttur, sem gefur allar nánari upplýsingar, á netfanginu [email protected]. Umsóknarfrestur er til 9. ágúst.
Aðstoð við umsjónarmann á viðburðum og í ferðalögum á vegum Hyldýpis. Þátttaka í starfi sem er í mikilli þróun.
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga og þekkingu á starfi með börnum og unglingum, er orðinn 18 ára, býr yfir færni í mannlegum samskiptum, skipulagsfærni, hugmyndaauðgi og getur sýnt frumkvæði í störfum. Gerð er krafa um heiðarleika og stundvísi og að viðkomandi sé jákvæð fyrirmynd fyrir börn og unglinga. Hreint sakavottorð er skilyrði sem og íslenskukunnátta. Menntun og reynsla á sviði frístundastarfs er kostur.
Aðgangskort í sund og líkamsrækt.
Íslenska










