Norðurþing
Norðurþing
Norðurþing

Laust starf umsjónarmanns félagsstarfs aldraðra

Félagsþjónusta Norðurþings auglýsir eftir öflugum og skapandi starfsmanni í félagsstarf aldraðra á Húsavík og nágrenni. Um er að ræða 50% starf til afleysingar fram að sumrinu 2027. Vinnutími er 13:00-16:00 3x í viku og 11:00-16:00 2x í viku. Starfsmaðurinn vinnur í samstarfi við Félag eldri borgara á Húsavík öflugt félagsstarf og mun starfið fara fram í húsnæði félagsins, Hlyn á Húsavík.

Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstundastarf 60 ára og eldri. Félagsstarfið er vettvangur samfunda, mannlegra samskipta og skapandi athafna. Leitast er við að virkja fumkvæði og hæfileika hvers og eins.

Óskað er eftir metnaðarfullum starfsmanni með reynslu, sem vill leggja sitt að mörkum að gera starfið faglegt og gott með gæði og kærleika að leiðarljósi, starfið er opið, skemmtilegt og býður upp á að innleiða nýjungar.

Starfshlutfall er 50% og um er að ræða afleysingu fram að sumri 2027 og greitt er samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf um miðjan ágúst 2026
Umsóknarfrestur er til og með 19. júlí 2026

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sunna Mjöll Bjarnadóttir [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Félagsstarf og dagleg starfsemi í félagsstarfinu
  • Vikulegir samráðsfundir með félagsþjónustu
  • Skipulagning starfsins í samráði við eldri borgara
  • Finna og halda utan um námskeið
  • Samskipti og samstarf
  • Umsjón með hádegisverði, t.d halda utan um skráningar, pantanir og frágangur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, virðing og samvinna
  • Áhugi á að vinna með fólki
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Áhugi á frístunda og félagsstarfi
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsins.
  • Kunnátta í handverki eða föndri er kostur
  • Góð íslensku kunnátta er skilyrði
Auglýsing birt1. júlí 2026
Umsóknarfrestur19. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Garðarsbraut 44, 640 Húsavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar