

Hreiðrið ungmennahús leitar að frístundaleiðbeinendum fyrir veturinn 2026-2027
Hreiðrið er staðsett í Menntasetrinu við Lækinn og er opið öllum ungmennum á aldrinum 16-25 ára. Hreiðrið er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með ungmennum. Starfið er unnið á grunni ungmennalýðræðis og í anda forvarna.
Hreiðrið hefur afnot af aðstöðu Nýsköpunarsetursins sem er einnig í húsinu, þar á meðal tæknismiðju þar sem meðal annars má finna 3D prentara, laserskera og hitapressu, listarými og hljóðver. Kunnátta og reynsla á þessum sviðum eða af öðru skapandi starfi er því mikill kostur.
Um er að ræða 25-40% starf. Hreiðrið er opið kl. 14-22 mánudaga til fimmtudaga og kl. 17-22 á föstudögum. Leitað er að starfsfólki á vaktir kl. 17-22 alla virka daga, fjöldi vakta eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Skipulagning og framkvæmd á fjölbreyttri dagskrá í samvinnu við ungmenni og annað starfsfólk
- Uppbyggjandi samvera og samskipti við ungmenni
- Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
- Stuðla að velferð og félagslegum þroska ungmennanna
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu
Menntun- og hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi með ungmennum æskileg
- Reynsla af hvers kyns skapandi starfi æskileg
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, jákvæðni og samviskusemi
- Áhugi á málefnum ungs fólks
- Íslenskukunnátta A2 skv. samevrópska tungumálaramma
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Svala Eyjólfsdóttir, [email protected].
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 3. ágúst 2026
Greinargóð ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska





















