Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Leikskólastjóri - leikskólinn Hvammur

Öflugur og faglegur leiðtogi óskast í stöðu leikskólastjóra Hvamms. Leitað er eftir einstaklingi sem býr yfir góðum samstarfshæfileikum, er lausnamiðaður og hefur skýra framtíðarsýn um að viðhalda metnaðarfullu leikskólastarfi.

Hvammur er sex deilda leikskóli í suðurbæ Hafnarfjarðar. Gildi skólans eru jákvæð samskipti, jafnrétti og vinátta og endurspeglast þau í öllu starfi leikskólans. Í Hvammi er starfað í anda Hjallastefnunnar og deildar leikskólans eru aldurs- og kynjaskiptar. Í leikskólanum er unnið með opinn og skapandi efnivið sem er eins á öllum deildum en þannig er tryggt að öll börn hafi jafnan aðgang að rými og leikefni. Í Hvammi er unnið með uppbyggingarstefnuna Uppeldi til ábyrgðar þar sem ýtt er undir ábyrgðarkennd og sjálfsstjórn. Auk þess styrkir hugmyndafræðin starfsfólk í að samræma aðferðir í samskiptum og agamálumm og að efla vináttu.

Í Hafnarfirði eru um 30.000 íbúar, sveitarfélagið rekur 17 leikskóla og er með þjónustusamning við tvo til viðbótar. Hafnarfjarðarbær er heilsueflandi vinnustaður og styður við heilsueflingu starfsmanna sinna með fjölbreyttum hætti.

Markmið mennta- og lýðheilsusviðs er að vera faglegt og framsækið forystuafl í mennta-, æskulýðs- og íþróttamálum og veita börnum og fjölskyldum í bænum heildstæða þjónustu og stuðla að samfellu í öllu starfi sem hefur velferð íbúa að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og menntastefnu Hafnarfjarðarbæjar
  • Veita leikskólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi
  • Stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri leikskólans
  • Bera rekstrarlega ábyrgð á að rekstur leikskólans sé innan ramma fjárhagsáætlunar
  • Sér um ráðningar starfsmanna, gerð vinnuskýrslna, skipuleggur vinnutíma starfsmanna og vinnutilhögun
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem kennari
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar- og/eða menntunarfræða kostur
  • Stjórnunarreynsla og víðtæk þekking/reynsla af leikskólastarfi
  • Leiðtogafærni
  • Áhugi á skólaþróun og faglegur metnaður
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót
  • Þekking á rekstri og opinberri stjórnsýslu
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð tölvufærni og þekking á nauðsynlegum kerfum

Nánari upplýsingar veitir Árný Steindóra Steindórsdóttir deildarstjóri leikskólamála, [email protected]

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ

Umsóknarfrestur er til og með 14. júlí 2026

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Umsókn um starfið þarf að fylgja greinagóð starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, fyrri störfum umsækjanda, menntun, stjórnunarreynslu og hæfni til að sinna starfi leikskólastjóra ásamt afriti af prófskírteini.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynja í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt25. júní 2026
Umsóknarfrestur14. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Staðarhvammur 23, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (24)
Hafnarfjarðarbær
Starfsfólk í búsetuþjónustu fyrir fólk með fötlun
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi óskast til starfa á skammtímadvöld fyrir fötluð ungmenni - Hnotubergi
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður á skammtímadvöl fyrir fatlað fólk - Hnotubergi
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Íþróttakennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Erluás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarstarfsfólk á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði í baðvörslu - Íþróttahús Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Félagsráðgjafi í ráðgjafarteymi
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Félagsráðgjafi í ráðgjafarteymi - tímabundið starf til 31. des.2026
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tónmenntakennari /sviðslistakennari – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi í Fjölgreinadeild Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tómstundaleiðbeinandi - Aldan - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Móttöku- og þjónustufulltrúi í Hafnarborg 
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Álfasteinn
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Safnstjóri skólasafns – Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Atferlisfræðingur - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Náms- og starfsráðgjafi í afleysingar - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Skarðhlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær