Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Atferlisfræðingur - Skarðshlíðarskóli

Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum atferlisfræðingi til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur í afleysingu í eitt ár. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum atferlisfræðingi til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi. Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1.-10. bekk. Næsta vetur eru um 530 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Atferlisgreining og atferlisþjálfun nemenda.
  • Áhorf í skólaumhverfi og móta íhlutunaráætlanir í samráði við kennara og stoðteymi.
  • Útbúa sjónrænt skipulag, umbunarkerfi og aðrar hagnýtar lausnir.
  • Samvinna og ráðgjöf til stjórnenda, kennara og starfsfólks skólans.
  • Ráðgjöf og stuðningur við nemendur og foreldra þeirra sem hluti af heildstæðri íhlutun.
  • Þáttaka í þverfaglegri teymisvinnu eftir þörfum
  • Vinna með félagsfærni og aðlaga námefni og námsaðstæður
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • B.A/B.S/B.ed. próf á sviði heilbrigðis-, mennta- eða félagsvísinda.
  • M.A/M.S í hagnýtri atferlisgreiningu
  • Þekking á SMT æskileg
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð enskukunnátta
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð

Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871, [email protected] eða Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861, [email protected]

Umsóknarfrestur er til 26. júní 2026.

Greinagóð ferilskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt15. júní 2026
Umsóknarfrestur26. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (24)
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Álfasteinn
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Safnstjóri skólasafns – Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skrifstofustjóri - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Náms- og starfsráðgjafi í afleysingar - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Skarðhlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Píanókennari – Tónlistarskóli Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi í Fjölgreinadeild Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Lækjarsel - Lækjarskóli 
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tómstundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Vitann – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði í frístundaheimilið Tröllaheima - Áslandsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Verkefnastjóri í félagsmiðstöð – Áslandsskóli - Ásinn
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kjararáðgjafi í mannauðs- og launadeild
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður í skammtímadvöl - Svöluhraun
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Dönskukennari á unglingastigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Bjarkalundur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliðar í Krakkaberg - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Almenn sumarstörf fædd 2008 og eldri - Vinnuskóli Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær