Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Dönskukennari á unglingastigi - Öldutúnsskóli

Öldutúnsskóli auglýsir eftir dönskukennara á unglingastigi.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Í Öldutúnsskóla eru um 590 nemendur í 1. - 10. bekk.

Í Öldutúnsskóla stunda um 590 nemendur nám í 1.–10. bekk. Við skólann er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem leitast er við að gera námið bæði áhugavert og skemmtilegt. Mikil áhersla er lögð á jákvæðan starfsanda, fjölbreytta kennsluhætti, öfluga teymisvinnu og markvissa teymiskennslu.

Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og endurspeglast þau í öllu starfi hans. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og Olweusaráætlun gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Jafnframt er lögð rík áhersla á umhverfismál og sjálfbærni.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna dönskukennslu á unglingastigi í samstarfi við skólastjórnendur, kennara og foreldra
  • Taka þátt í uppbyggingu og þróun skólastarfs
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk skólans
  • Vinna að þróun kennsluhátta og skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Starfa samkvæmt stefnu og gildum skólans
  • Taka þátt í að skapa jákvætt og öruggt náms- og starfsumhverfi fyrir nemendur og starfsfólk

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Áhugi og/eða reynsla af dönskukennslu.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans
  • Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir skólastjóri, í síma 664-5894, og Áslaug Hreiðarsdóttir aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5895

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http:www.oldutunsskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 16. júní 2026

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt2. júní 2026
Umsóknarfrestur16. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Öldutún 9, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar