Öxarfjarðarskóli
Öxarfjarðarskóli
Öxarfjarðarskóli

Kennarastaða við Öxarfjarðarskóla

Vilt þú slá til og koma að kenna með okkur í Öxarfjarðarskóla næsta vetur?

Öxarfjarðarskóli er fámennur samrekinn leik- og grunnskóli með tæplega 60 nemendur skólaárið 2026-27, þar af um 40 nemendur í grunnskóladeild. Um er að ræða í samkennslu árganga í þremur deildum; yngri deild (1.-4.b), miðdeild (5.-7.b) og unglingadeild (8. - 10.b). Skólinn er staðsettur í fallegu og gróðursælu umhverfi við Öxarfjörð þar sem starfar góður og samhentur hópur fólks eftir gildum skólans sem eru vinátta, virðing, jákvæðni og metnaður. Leitað er eftir umsjónarkennara í teymi á mið-og unglingastig í 100% stöðu með sérstaka áherslu á íslensku og dönsku.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjónarkennsla í teymi.
  • Samstarf við foreldra um nám og velferð barna.
  • Samstarf innan skólans að faglegum málefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu í grunnskóla.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði.
  • Áhugi á teymisvinnu og teymiskennslu.
  • Áhugi á að starfa með börnum.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Hafa á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum nemenda.
  • Ábyrgð og stundvísi.
  • Hreint sakavottorð.
Auglýsing birt2. júní 2026
Umsóknarfrestur16. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Lundur 154187, 671 Kópasker
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Kennsla
Starfsgreinar
Starfsmerkingar