

Tengiliður farsældar barna – Hraunvallaskóli
Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða tengilið farsældar barna fyrir skólaárið 2026-2027
Ráðið verður í starfið frá og með 1. ágúst og er starfið tímabundið í eitt ár. Starfshlutfall ráðningar er 50% en möguleiki er á aukningu í starfshlutfalli í öðrum störfum innan skólans s.s. kennslu.
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Markmið með starfi tengiliðar farsældar barna í leik- og grunnskólum er að stuðla að því að nemendur og foreldrar sem á þurfa að halda hafi greiðan aðgang að samþættri þjónustu við hæfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita foreldrum og nemendum sem á þurfa að halda upplýsingar um samþætta farsældarþjónustu
- Skipuleggja, samhæfa og fylgja eftir þjónustu á fyrsta stigi samþættingar í kjölfar frummats
- Meta og/eða eiga samráð um mat á þörf fyrir annars eða þriðja stigs þjónustu og þar með skipan málstjóra
- Stuðla að þátttöku foreldra og nemenda í ákvarðanatöku og úrræðum
- Samvinna og fræðsla til stjórnenda, kennara og annars starfsfólks skóla
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf kennara/löggild starfsréttindi heilbrigðisstéttar eða sambærileg menntun sem tengist starfi með börnum og fjölskyldum
- Nám á framhaldsstigi í farsæld barna er kostur
- Haldgóð reynsla af starfi með börnum og eftir atvikum fjölskyldum
- Þekking á verkefnastjórnun er kostur
- Þekking á snemmtækum og hagnýtum verkfærum til stuðnings nemendum
- Leikni í ráðgjöf í þverfaglegu samstarfi
- Samskiptahæfni og jákvætt viðmót
- Góð íslensku- og enskukunnátta eða C1, samkvæmt evrópska tungumálaramma
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, [email protected] og Aðalbjörg Sigurðardóttir, [email protected], í síma 590 2800.
Umsóknarfrestur er til og með 11. júní 2026.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn ásamt menntunargögnum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska

























