

Fagaðili í Sérdeild Sunnulækjarskóla
Auglýst er 100% staða fagaðila í Sérdeild Sunnulækjarskóla frá 1. ágúst 2026
Sérdeild Sunnulækjarskóla, Setrið, auglýsir eftir drífandi og kraftmiklum fagaðila í fullt starf frá 1. ágúst. Fagaðili veitir leiðsögn og ráðgjöf til foreldra/forráðamanna og starfsfólks og vinnur markvisst að því að efla sjálfstæði, þátttöku og færni nemenda námslega, félagslega og í athöfnum daglegs lífs.
Setrið er deild í Sunnulækjarskóla þar sem rúmlega 30 börn stunda nám. Deildin veitir nemendum með sérþarfir fjölbreytt nám sem tekur mið af þörfum þeirra og stöðu. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám og að skapa umhverfi þar sem hver nemandi fær tækifæri til að efla hæfileika sína, styrkleika, sköpunargáfu og persónulega getu á sínum forsendum. Jafnframt er stuðlað að virkri þátttöku í skólasamfélaginu þar sem hver og einn fær tækifæri til að taka þátt á eigin forsendum, með styrkleika sína að leiðarljósi.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
-
Starfar í nánu samstarfi við starfsfólk, foreldra/forráðamenn og deildarstjóra.
-
Ber ábyrgð á öryggi, velferð og farsæld nemenda í daglegu starfi.
-
Sinnir kennslu og þjálfun sem tekur mið af þörfum og styrkleikum nemenda.
-
Skipuleggur kennslu, útbýr námsgögn og fylgir eftir markmiðum og áætlunum.
-
Tekur þátt í gerð einstaklingsnámsskráa, mati og áætlanagerð í samstarfi við starfsfólk og foreldra/forráðamenn.
-
Veitir faglega ráðgjöf og tekur þátt í þverfaglegu samstarfi.
-
Stuðlar að jákvæðu, öruggu og uppbyggilegu námsumhverfi.
-
Gerð er krafa um háskólamenntun á sviði skólamála svo sem í þroskaþjálfafræði, atferlisfræði, iðjuþjálfun, kennslufræði eða uppeldis- og menntunarfræði, eða aðra sambærilega menntun sem nýtist í starfi.
-
Áhugi á skólastarfi og reynsla af starfi með börnum.
-
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
-
Jákvætt viðhorf, sveigjanleiki og lausnamiðuð hugsun.
-
Þekking á skipulagðri kennslu samkvæmt TEACCH er kostur.
-
Reynsla af teymisvinnu æskileg.
-
Færni í mannlegum samskiptum og samstarfshæfni.
-
Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
-
Góð færni í íslensku, bæði í ræðu og riti.
Íslenska










