Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Tómstundaleiðbeinandi - Verið - Hvaleyrarskóli

Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða tómstundaleiðbeinanda í félagsmiðstöðina Verið. Ráðið er í stöðuna frá 24. ágúst 2026.

Félagsmiðstöðin Verið býður börnum og unglingum í 5. – 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Verið er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingunum.

Starfið er ca. 25% og hentar vel fyrir skólafólk eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu, vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
  • Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
  • Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla í tómstundarmálum
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Íslenskukunnátta
  • Stundvísi og skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva
  • Almenn tölvukunnátta

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Heiða Magnúsdóttir, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, í síma 664-5778 eða í gegnum netfangið [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 9. júní 2026

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt26. maí 2026
Umsóknarfrestur9. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Akurholt 1, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar