

Aðstoðarforstöðumanneskja frístundar
Barnaskóli Kársness er nýr skóli sem hýsir fjögurra deilda leikskóla og yngsta stig grunnskóla ásamt frístund. Skólabyggingin er öll hin glæsilegasta sem skapar spennandi tækifæri í skólastarfi fyrir um 60-80 leikskólabörn og um 300 nemendur í 1.-4. bekk.
Við leitum að jákvæðum og áhugasömum einstaklingi í í starf aðstoðarforstöðumanneskju frístundar í Barnaskóla Kársness frá og með ágúst 2026. Aðstoðarforstöðumanneskja frístundar vinnur að mótun faglegs starfs og starfsáætlun í samráði við forstöðumann og skólastjóra. Aðstoðarforstöðumanneskja hefur umsjón með skipulagi daglegrar starfsemi í frístund ásamt forstöðumanni, ber ábyrgð á móttöku og skráningu barna og eftirliti með viðveru þeirra meðan á dvalartíma stendur í samvinnu við forstöðumann.
- Þátttaka í gerð starfsáætlana í samvinnu við forstöðumann frístundar og skólastjóra og eftirfylgni með framkvæmd þeirra
- Þátttaka í skipulagningu hópastarfs og annars faglegs starfs með börnum
- Umsjón með samskiptum við foreldra, starfsfólk skóla og frístundar, stjórnendur og íþróttafélög vegna barna
- Hópastarf með börnum inni og úti
- Umsjón með móttöku, eftirliti og brottför barna
- Stúdentspróf, sambærileg menntun sem nýtist í starfi eða umtalsverð reynsla á starfssviði
- Háskólanám á sviði tómstundafræða, uppeldisfræða eða tengdra greina er kostur
- Reynsla af stjórnun og skipulögðu starfi með börnum er æskileg
- Hæfni til að skipuleggja faglegt starf og veita því forystu
- Samskiptahæfni, frumkvæði og sköpunargleði
- Færni og vilji til að starfa í teymi með velferð og farsæld barna að leiðarljósi
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
Íslenska










