Leikskólinn Sumarhús
Leikskólinn Sumarhús
Leikskólinn Sumarhús

Fagstjóri í hreyfingu - afleysing í eitt skólaár

Leikskólinn Sumarhús, nýr leikskóli í Helgafellslandi í Mosfellsbæ, óskar eftir að ráða fagstjóra í hreyfingu til starfa í eitt skólaár vegna afleysinga í fæðingarorlofi. Leitað er að lausnamiðuðum og drífandi einstaklingum með brennandi áhuga á vellíðan og farsæld barna, framsækinni skólaþróun og framúrskarandi leikskólastarfi.

Sumarhús er fimm deilda leikskóli og gert ráð fyrir allt að 150 börnum á aldrinum 1-5 ára. Skólinn er á heilsubraut og starfar eftir Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur, með áherslu á næringu, hreyfingu og sköpun þar sem heilsa og vellíðan nemanda, starfsfólks og samfélagsins alls verður í forgrunni.

Staðan er laus frá 10. ágúst 2026

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hefur umsjón með skipulögðum hreyfistundum í skólanum 

  • Leggur áherslu á alhliða hreyfiörvun, jafnvægi, þol og styrk

  • Metur hreyfiþroska barna og skráir í heilsubók barnsins 

  • Tryggir að sérhvert barn fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum

  • Hefur umsjón með tækjakostum og kennslubúnaði í hreyfisal

  • Tekur þátt í teymisvinnu innan skólans

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íþróttakennari/fræðingur

  • Leikskólakennari eða annað kennarapróf/uppeldismenntun

  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg

  • Framúrskarandi samskiptahæfni, lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðmót 

  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi og faglegur metnaður 

  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur 
  • Líkamsræktarstyrkur 
  • Sundkort 
  • 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega.  Starfsfólk safnar því tveimur stundum vikulega sem nýttir er sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar
Auglýsing birt26. maí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vefarastræti 2-6, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar