
Leikskólastjóri
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í leikskólanum Hlíð lausa til umsóknar. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt leikskólastarf.
Hlíð er sex deilda leikskóli í grónu hverfi í Hlíðunum. Skólinn hefur tvær starfsstöðvar — við Engihlíð fyrir eldri börn og við Eskihlíð fyrir yngri börn. Starfsstöðin við Engihlíð er nú í endurnýjun og er á áætlun að endurgert húsnæði verði tilbúið í apríl 2027.
Einkunnarorð skólans eru virðing – vinátta – velíðan. Lögð er áhersla á að börnunum líði vel, að þau séu félagslegafær og skilji mikilvægi þess að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.
Námskrá skólans byggir á því að börn læri í gegnum leik og hann er óendanleg uppspretta nýrra möguleika, námstækifæra og gleði.
Hér er frábært tækifæri fyrir leikskólastjóra til að byggja upp öflugt lærdómssamfélag — bæði fyrir börnin og starfsfólkið.
- Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga, reglugerða,aðalnámskrár
- og stefnu Reykjavíkurborgar
- Stýra rekstri og daglegri starfsemi skólans, þar á meðal fjárreiðum, áætlanagerð og eftirfylgni
- Standa vörð um farsæld, velferð og nám barna skólans
- Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans og umbótaáætlunum
- Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi
- Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun
- Tryggja virkt og farsælt samstarf við foreldra, foreldrafélög, skólaþjónustu og aðra ytri hagaðila sem deilaábyrgð á velferð barna.
- Leyfisbréf
- Leikskólakennaramenntun er æskileg
- Framhaldsnám og reynsla af stjórnun í leikskóla æskileg
- Knslureynsla á leikskólastigi
- Stjórnunar- og leiðtogahæfileikar
- Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun
- Lipurð og hæfni í samskiptum
- Faglegur metnaður, sjálfstæði og frumkvæði.
- Áhugi og/eða reynsla af aleiða þróunarstarf
- Íslenskukunnátta C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Íslenska










