

Glerárskóli: Sérkennari
Við Glerárskóla er laus til umsóknar 100% staða sérkennara.
Starfið er fyrir skólaárið 2026-2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði Jákvæðs aga og eflingu góðra og jákvæðra samskipta. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám, góða stoðþjónustu, verkgreinar og teymisvinnu. Glerárskóli leitast við að undirbúa nemendur undir líf og starf með því að aðstoða þá við að finna og efla hæfileika sína, taka ábyrgð á eigin námi og gjörðum og efla andlegt og líkamlegt heilbrigði.
Stoðþjónusta Glerárskóla er gríðarlega öflug og fagleg en það styrkir allt skólastarf í þágu nemenda.
Glerárskóli Erasmus+ vottaður skóli. Glerárskóli er hnetulaus skóli.
Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is
Leitað er að hugmyndaríkum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur sýnt árangur í störfum sínum, á auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, á auðvelt með öll samskipti og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við annað starfsfólk, stjórnendur skólans og forráðamenn.
Umsókninni skal fylgja greinargóð ferilskrá um störf umsækjanda, menntun og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi sérkennara.
Þá skal fylgja umsókninni greinargerð um hugmyndir umsækjanda og sýn hans á starfið.
- vera hluti af stoðteymi skólans.
- sinna sérkennslu nemenda sem þurfa sértæka aðstoð í námi og taka þátt í lausnaleit og vinnu hvað varðar þátttöku þeirra í daglegu skólastarfi
- aðstoða umsjónarkennara við gerð einstaklingsmiðaðra náms- og stundaskráa
- veita kennurum, nemendum og foreldrum ráðgjöf varðandi nám, kennslu og námsgögn
- útbúa kennslugögn og aflar nýrra í samræmi við þarfir einstakra nemanda
- vera teymisstjóri í nemendamálum
- vera þátttakandi í markvissri nýbreytni og þróunarstarfi stoðþjónustu skólans
- starfa undir leiðsögn verkefnastjóra stoðþjónustu
- starfa undir stjórn deildarstjóra og skólastjóra skólans
- Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla
- Kennslureynsla í grunnskóla
- Framhaldsnám á sviði sérkennslu er æskileg
- Réttindanám í LOGOS er kostur
- Þekking á jákvæðum aga, teymisvinnu og teymisstjórnun er kostur
- Vald á fjölbreyttum kennsluaðferðum sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og getu nemenda, t.a.m. leiðsagnarnámi
- Góð þekking á kennslu og uppeldisfræðum auk skólaþróunar
- Áhugi og metnaður til að vinna með stoðþjónustuteymi skólans og fylgja sýn hans og stefnu
- Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, samstarfsvilji, sveigjanleiki og víðsýni í starfi
- Góðir skipulagshæfileikar, reglusemi og samviskusemi
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Íslenska















