

Aðstoðarskólastjóri á leikskólann Tröllaborgir
Leikskólinn Tröllaborgir óskar eftir að ráða aðstoðarskólastjóra í 100% ótímabundna stöðu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 4. ágúst 2026 eða samkvæmt samkomulagi.
Í Tröllaborgum leggjum við áherslu á Lífsleikni í leikskóla og byggir sú hugmyndafræði á kenningum ýmissa fræðimanna sem snúa að mannrækt og siðferðilegu gildismati í samfélagi manna og þeirri trú að efla og styrkja hið góða í hverjum einstaklingi bæði börnum og fullorðnum. Lögð er áhersla á að túlka lífsleiknina sem hugsjón sem þurfi að flæða yfir allt starf frekar en sem námsgrein innan skólans.
Einkunnarorð skólans eru „Hugur- hjarta - hönd“.
Skólinn hefur tvær starfsstöðvar; að Tröllagili 29 og í Árholti Háhlíð 1
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://trollaborgir.karellen.is/
Starfssvið:
Aðstoðarleikskólastjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, mannauðs- og menntastefnu Akureyrarbæjar sem og Réttindaskóla UNICEF, þar sem mannréttindi barna eru leiðarljós í öllu starfi. Næsti yfirmaður aðstoðarskólastjóra er skólastjóri.
- Vinnur náið með skólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á skipulagningu, rekstri, starfsmannamálum og faglegu starfi skólans.
- Er staðgengill í fjarveru skólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans.
- Vinnur að uppeldi og menntun nemenda og starfar að hluta til inni á deildum.
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn nemenda.
- Sinnir að öðru leyti þeim verkefnum er varðar stjórnun skólans sem yfirmaður felur honum.
- Fylgist með ásamt skólastjóra að leikskólinn sé búinn nauðsynlegum uppeldis-og kennslugögnum.
- Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið kennari.
- Viðbótarmenntun á sviði menntunarfræða og/eða stjórnunar er kostur.
- Reynsla af stjórnun og leikskólastarfi er æskileg.
- Reynsla og áhugi af faglegri forystu og leiðsögn á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi.
- Farsæl reynsla af mannauðsmálum kostur og færni til eflingar mannauðs.
- Jákvæðni og sjálfstæði.
- Samstarfsvilji og framúrskarandi hæfni og lipurð í samskiptum.
- Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
- Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Góð enskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Íslenska
Enska

