Akureyri
Akureyri
Akureyri

Glerárskóli: Sérhæfður starfsmaður í grunnskóla

Laus er til umsóknar um 70% staða sérhæfðs starfsmanns í Glerárskóla. Óskað er eftir atferlisfræðingi, þroskaþjálfa eða starfsmanni með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi. Ráðning er frá 1. ágúst 2026 til 18. júní 2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði Jákvæðs aga og eflingu góðra og jákvæðra samskipta. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám, góða stoðþjónustu, verkgreinar og teymisvinnu. Glerárskóli leitast við að undirbúa nemendur undir líf og starf með því að aðstoða þá við að finna og efla hæfileika sína, taka ábyrgð á eigin námi og gjörðum og efla andlegt og líkamlegt heilbrigði.

Stoðþjónusta Glerárskóla er gríðarlega öflug og fagleg en það styrkir allt skólastarf í þágu nemenda.

Glerárskóli Erasmus+ vottaður skóli. Glerárskóli er hnetulaus skóli.

Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is

Leitað er að hugmyndaríkum og faglegum einstaklingi sem á auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, sem hefur mikinn metnað, á auðvelt með öll samskipti og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.

Meginhlutverk starfsmanns er að sinna nemanda/nemendum á grunnskólaaldri með sértækar þarfir. Starfsmaður er í teymi stoðþjónustu skólans sem sinnir nemendum, í samvinnu við kennara, starfsfólk og stjórnendur, við að efla sjálfstæði og skólafærni þeirra. Tilgangur þess er að nemandi geti verið þátttakandi í skólastarfi og verkefni starfsmanns er að tryggja/stuðla að þeirri aðlögun sem þarf til að nemandi fái jákvæða upplifun af skólalífinu, njóti og læri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðlögun nemenda að skólastarfinu svo þeir fái notið sín sem best, þjálfun/umönnun nemenda.
  • Gerð einstaklingsáætlana í samvinnu við umsjónarkennara, sérkennara, foreldra og aðra eftir því sem við á.
  • Skipulagning þjálfunar- og námsumhverfis, að velja/útbúa þjálfunar- og námsgögn og fylgja eftir settum markmiðum.
  • Mat á árangri og endurskoðun markmiða í samstarfi við annað fagfólk.
  • Finna námsgögn fyrir nemanda/nemendur og aðlaga þau í samvinnu við stoðþjónustu og kennara.
  • Sitja teymisfundi vegna nemanda/nemenda, skipuleggja og stýra eftir þörfum auk þess að sitja aðra fundi er viðkoma nemanda/nemendum.
  • Vinna í nánu samstarfi með foreldrum/forráðamönnum nemanda/nemenda.
  • Veita ráðgjöf og leiðsögn til samstarfsfólks, innan og utan skólans varðandi sérþarfir nemanda/nemenda og miðla sérþekkingu sinni til annarra starfsmanna eftir þörfum.
  • Vera tengiliður við aðra aðila sem að nemanda/nemendum koma s. s. umsjónarkennurum umsjónarbekks, stoðþjónustu og skólaþjónustu.
  • Önnur þau verkefni sem falla innan starfssviðs og er ætlað að tryggja sem mesta farsæld  nemanda/nemenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf og starfsréttindi sem þroskaþjálf, atferlisfræðingur eða sem tengist þeirri háskólamenntun sem viðkomandi hefur.
  • Áhugi á þjálfun, kennslu og velferð barna með sértækar þarfir er skilyrði.
  • Reynsla af starfi með fötluðum börnum og/eða börnum með sértækar þarfir æskileg.
  • Reynsla af starfi í grunnskóla er kostur.
  • Aðlögunar- og samskiptafærni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Skipulagsfærni, stundvísi og reglusemi.
  • Lausnamiðuð hugsun og færni til að sinna umbótum.
  • Kunnátta í skyndihjálp er kostur.
  • Gott líkamlegt atgervi.
  • Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki
  • Áhugi á að taka þátt í þróun skólastarfs og að taka að sér fjölbreytt verkefni.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samræmist starfinu
Auglýsing birt22. maí 2026
Umsóknarfrestur3. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar