

Barnaskólinn í Hafnarfirði - leikskólakennarar með 5 ára börn
Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði auglýsir lausa stöðu leikskólakennara með 5 ára leikskólabörn.
Um er að ræða 100% starfshlutfall næsta skólaár frá og með ágúst 2026 með möguleika á fastráðningu.
Í Barnaskólanum starfar einstaklega flottur og jákvæður hópur fólks og því leitum við að jákvæðum og lífsglöðum kennurum sem er tilbúnir að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika. Viðkomandi þurfa að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi. Námsumhverfið er mjög lifandi þar sem sköpun er í fyrirrúmi.
Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði er samrekinn leik- og grunnskóli í einstaklega fallegu og skemmtilegu umhverfi með Víðistaðatúnið í bakgarðinum. Skólann sækja börn á aldrinum 5-9 ára. Jafnréttisuppeldi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir hugmyndafræðinnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska komandi kynslóða. Við hvetjum öll kyn til að sækja um starfið.
- Starfa eftir stefnu skólans og kenna samkvæmt aðalnámskrá leikskóla, skólanámskrá og kynjanámskrá Hjallastefnunnar
- Taka þátt í þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki
- Stuðla að velferð barna í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Kennsluréttindi (leikskólakennari)
- Reynsla, menntun og þekking á starfi með börnum
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Jákvæðni og gleðiríkt viðmót
- Starfsfólk er í fríu fæði allan vinnudaginn og komið er til móts við séróskir um mataræði
Íslenska










