
Leikskólinn Höfðaberg
Höfðaberg er útibú frá Lágafellsskóla sem hóf störf skólaárið 2014-15 og er staðsett við Æðarhöfða. Þá voru nemendur við Höfðaberg 124 talsins í þremur fimm ára deildum og fjórum 1. bekkjum. Skólaárið 2021-22 eru nemendur á Höfðabergi 140 talsins í fimm þriggja-fjögurra ára deildum (Lóu-, Spóa-, Kríu-, Uglu- og Lundabergi) og tveimur fimm ára deildum (Blika- og Þrastarbergi). Öll grunnskólabörn eru í vetur komin í aðalbyggingu skólans.

Höfðaberg óskar eftir leikskólakennurum fyrir næsta skólaár
Leikskólinn Höfðaberg leitar að leikskólakennurum og/eða starfsfólki með aðra menntun og reynslu sem nýtist í starfi.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf ekki síðar en 1.september.
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi?
Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í skemmtilegum verkefnum?
Í Höfðabergi eru 162 börn á aldrinum 3-6 ára.
Starfshlutfall er 100% og um framtíðarstarf er að ræða.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur að uppeldi og menntun barna.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar.
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem deildarstjóri felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara með áherslu á leikskólastarf eða aðra sambærilega menntun.
- Virðing í starfi.
- Fagleg framkoma.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
- Frumkvæði og metnaður í starfi.
- Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Reynsla í starfi með leikskólabörnum.
- Áhugi á að vinna með börnum.
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
- Sundkort í sundlaugar Mosfellsbæjar
- Frítt fæði
- Starfsmannaafsláttur af leikskólagjöldum
- Styttri vinnuvika. 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega. Starfsfólk safnar tveimur stundum vikulega sem nýttir eru sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar
Auglýsing birt19. júní 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Æðarhöfði 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniKennariMetnaðurTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Skemmtileg hlutastörf í frístundaheimilum í Árbæ, Grafarholti og Grafarvogi
Frístundamiðstöðin Brúin (Ársel/Gufunesbær)

Lágafellsskóli - umsjónarkennari á yngsta stig
Lágafellsskóli

Deildarstjóri - Bríetartún
ungbarnaleikskóli - Bríetartún

Kennarastöður við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar

Leikskólinn Hagasteinn: Leikskólakennarar eða aðrir háskólamenntaðir
Akureyri

Leikskólinn Naustatjörn: Starfsfólk í leikskóla
Akureyri

Leiðbeinandi í Öldunni - virkni og hæfing fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu
Borgarbyggð

Aðstoðarleikskólastjóri
Leikskólinn Goðheimar

Deildarstjóri
Leikskólinn Álfheimar, Selfossi

Stapaskóli – Skólastjóri
Reykjanesbær

Deildarstjóri - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á miðstigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær