

Aðstoðarleikskólastjóri
Leikskólinn Goðheimar auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra í fullt starf.
Um er að ræða gefandi og skemmtilegt stjórnunarstarf í góðu starfsumhverfi barna og
fullorðinna. Leitað er að leikskólakennara með leiðtogahæfileika sem er tilbúinn að taka þátt í að leiða áfram og þróa metnaðarfullt og faglegt starf leikskólans.
Aðstoðaleikskólastjóri starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa tæplega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins.
- Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans.
- Er faglegur leiðtogi og ber að kynna sér nýjungar í starfi og miðla þekkingu til starfsmanna.
- Skipuleggur og ber ábyrgð á að undirbúningstímar starfsmanna séu notaðir til skipulags á leikskólastarfinu.
- Að sinna þeim verkefnum er varða stjórnun og uppeldi og menntun leikskólabarna sem yfirmaður felur honum.
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf sem leikskólakennari.
- Reynsla, áhugi og hæfni í starfi með börnum.
- Reynsla og/eða menntun í stjórnun æskileg.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Jákvæðni, frumkvæði, áhugi og góður samstarfsvilji.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Góð íslenskukunnátta.
- Góð tölvukunnátta.
- Áhugi og/eða reynsla af þróunarstarfi.
- Áhugi og/eða reynsla af teymisvinnu.
Íslenska










