
Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.

Leikskólinn Bæjarból - leikskólakennari í hreyfingu
Leikskólinn Bæjarból auglýsir eftir leikskólakennara í 100% stöðu þar af 50% í útihreyfingu. Leikskólinn er fjögurra deilda með börn á aldrinum 1-5 ára. Lögð er áhersla á hreyfingu, hreysti og útiveru í starfi leikskólans.Einkunnarorð leikskólans eru: Leikur – Hreyfing – Lífsleikni
Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
- Skipuleggur og framkvæmir útikennslu allra barna í leikskólanum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Fríðindi í starfi
Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:
- Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
- Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.
Hlunnindi fyrir starfsmenn leikskóla:
- Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
- 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
- 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
- 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
- Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Auglýsing birt16. júní 2026
Umsóknarfrestur20. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Bæjarbraut
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (8)

Leikskólinn Bæjarból - leikskólakennari
Garðabær

Krókamýri - starf á heimili fatlaðs fólks
Garðabær

Urriðaholtsskóli - leikskólakennari
Garðabær

Hofsstaðaskóli - umsjónakennarar
Garðabær

Hofsstaðaskóli - leiðbeinandi á frístundaheimili
Garðabær

Íþróttamiðstöðin Urriðaholti - starfsmenn í íþróttamannvirki
Garðabær

Álftanesskóli - umsjónarmaður frístundaheimilisins Álftamýri
Garðabær

Sjálandsskóli - kennari í hönnun, smíði og nýsköpun
Garðabær
Sambærileg störf (12)

Árbær á Selfossi - Hópstjóri Skólaárið 2026-2027
Hjallastefnan

Leikskólinn Bæjarból - leikskólakennari
Garðabær

Grunnskólakennari - Hólabrekkuskóli
Hólabrekkuskóli

Deildarstjóri - Bríetartún
ungbarnaleikskóli - Bríetartún

Sérkennslustjóri, deildarstjóri, leikskólakennari skólaárið 2026-2027
Sveitarfélagið Vogar

Leikskólakennari
Ævintýraborg Vogabyggð

Kennari - Leikskólinn Álfasteinn
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Valhúsaskóli - íslenskukennari á unglingastigi
Seltjarnarnesbær

Leikskólakennara við Lyngholt Reyðarfirði
Leikskólinn Lyngholt

Kennari óskast í leikskólann Nóaborg
Leikskólinn Nóaborg

Leikskólinn Hagasteinn: Leikskólakennarar eða aðrir háskólamenntaðir
Akureyri