

Leikskólinn Hagasteinn: Leikskólakennarar eða aðrir háskólamenntaðir
Leikskólinn Hagasteinn á Akureyri óskar eftir að ráða kennara eða starfsmenn með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi skólans (B.Ed, BS eða BA) í 80 til 100% ótímabundnar stöður.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst 2026.
Í leikskólanum Hagasteini verður lögð áhersla á Jákvæðan aga, hæglæti og að skapa gott náms - og starfsumhverfi. Þar sem um nýjan leikskóla er að ræða mun starfsfólk taka þátt í að byggja upp starf skólans frá grunni og því er um einstakt tækifæri að ræða fyrir metnaðarfulla einstaklinga.
Sérstakar áherslur skólans eru: Jákvæður agi, hæglæti, barnasáttmálinn, umhverfismennt og vellíðan.
Sýn okkar er: faglegur skóli, starfsánægja og fagleg forysta með gleði, traust og virðingu að leiðarljósi.
Einkunnarorð skólans eru: Hæglæti – Hugrekki - Hlýja
Næsti yfirmaður er deildarstjóri.
- Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
- Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi skólans og þróunarverkefnum undir stjórn skólastjóra.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna. Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum skólans.
- Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast skólanum í samráði við deildarstjóra. Situr kennarafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi skólans.
- Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
- Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi, öðru kennaranámi sem veitir leyfisbréf til kennslu eða annarri háskólamenntun (B.s., B.a., B.ed.) sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi í leikskóla er æskileg.
- Mikilvægt er að viðkomandi sé tilbúinn að takast á við skemmtilegt starf með börnum og fullorðnum.
- Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði, sjálfstæði, ábyrgð og sveigjanleika í starfi.
- Þekking á agastefnu skólans, Jákvæðum aga, er æskileg en þó ekki skilyrði.
- Almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
- Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli er nauðsynleg.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Íslenska










