Akureyri
Akureyri
Akureyri

Ráðgjafi í Öskjunni - fjölskyldustuðningur, velferðarsvið Akureyrarbæjar

Laus er til umsóknar 80-100% ótímabundin staða ráðgjafa í Öskjunni á velferðarsviði. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

Á velferðarsviði Akureyrarbæjar er rekin fjölbreytt velferðarþjónusta samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, barnaverndarlögum, lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og lögum um málefni aldraðra. Hlutverk sviðsins er að bjóða upp á ráðgjöf og beita úrræðum auk þess sem sviðið rekur þjónustukjarna og vinnustaði fyrir fatlað fólk. Þjónustusvæðið nær yfir Akureyri, Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit, Grýtubakkahrepp og Svalbarðsstrandarhrepp skv. þjónustusamningum við sveitarfélögin um velferðarþjónustu og samningi sveitarfélaganna um málaflokk fatlaðra. Auk þess sem ráðgjafar sinna eftir atvikum málum er varðar barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra, en það þjónustusvæði spannar landsvæðið frá Siglufirði til Bakkafjarðar.

Ráðgjafi í Öskjunni starfar innan félagsþjónustunnar í barna- og fjölskylduþjónustu.

Starfið felur í sér að sinna ráðgjöf, fræðslu og stuðningi á heimili fjölskyldna sem eru í vanda með uppeldishlutverkið hvort sem er vegna aðstæðna foreldra sjálfra og/eða erfiðeika hjá barninu. Ráðgjafar vinna í samvinnu við aðra starfsmenn sviðsins, þvert á teymi og bera ábyrgð á að vinnsla mála sé í samræmi við uppsett markmið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Situr í teymi Barna- og fjölskylduþjónustu sem tekur fyrir og afgreiðir mál teymisins þar á meðal umsóknir um þjónustu Öskjunnar.
  • Fær úthlutað málum og fundar með foreldri/fjölskyldu. Metur þörf á stuðningi og setur upp áætlun sem miðar að því að ná þeim markmiðum sem sett eru fram í umsókn.
  • Notar viðurkenndar aðferðir við vinnslu mála s.s. jákvæðan aga, step by step, PMTO, TEACCH og valdeflingu. Fylgist með nýjungum er varðar uppeldismál og snemmtæka íhlutun. Í hverju máli fyrir sig þarf að velja þær aðferðir og leiðir sem henta þeim markmiðum sem vinna skal að og þeim fjölskyldum sem eiga í hlut.
  • Skrifar dagnótur, skráir heimsóknir, fundi og annað það sem skiptir máli við vinnslu máls.
  • Ber ábyrgð á að upplýsa tilvísanda um framvindu málsins. Leitar til hans til að fá ráðgjöf eftir þörfum. Heldur reglulega stöðufundi með tilvísunaraðila og foreldrum þar sem farið er yfir stöðu málsins og áframhald.
  • Tekur þátt í samráði um málefni fjölskyldna við aðrar stofnanir þar sem það á við eins og er í takt við nýju farsældarlögin, s.s leik- og grunnskóla, heilsugæslu og Sjúkrahúsið á Akureyri.
  • Heldur saman öllum gögnum er varðar þjónustu Öskjunnar við fjölskyldur og gerir mat á árangri af þeirri íhlutun sem fer fram hvort þörfum fyrir þjónustu sé mætt, markmið séu metin og ánægja fjölskyldna með þjónustuna mæld.
  • Útbýr fræðsluefni, sjónrænt skipulag og gögn fyrir námskeið sem þarf til að sinna starfinu og koma ráðgjöf til foreldra með skilvirkum hætti.
  • Vinnur önnur þau verkefni sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni s.s. þátttaka í ýmsum þróunarverkefnum.
  • Ráðgjafar Öskjunnar bera ábyrgð á að þróa Öskjuna í takt við tíðarandann. Allt gagnasafn Öskjunnar hafa ráðgjafar útbúið og er það á þeirra ábyrgð að uppfæra og bæta við þegar þörf er á.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á uppeldis- og/eða heilbrigðissviði (B.A./B.S.)
  • Reynsla af ráðgjöf við fólk í vanda.
  • Reynsla af starfi með börnum og barnafjölskyldum.
  • Þekking á öllum helstu uppeldisaðferðum og frávikum í þroska og hegðun barna.
  • Færni í teymisvinnu og þverfaglegu samstarfi.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Samskiptafærni og hæfni til að byggja upp traust með fjölskyldum.
  • Reynsla af námskeiðahaldi kostur.
  • Reynsla af meðferðarstarfi kostur.
  • Góð færni til að tjá sig á íslensku bæði í ræðu og riti (C1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma).
  • Góð færni til að tjá sig á ensku bæði í ræðu og riti (C1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma).
  • Virðing fyrir fjölbreytileika einstaklinga og réttindum þeirra.
  • Hefur áhuga á að leggja sitt af mörkum til að bæta þjónustuna og auka lífsgæði þeirra einstaklinga sem verið er að styðja.
  • Gerð er krafa um vammleysi s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt11. júní 2026
Umsóknarfrestur24. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Glerárgata 26, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar