Kvennaathvarfið
Kvennaathvarfið
Kvennaathvarfið

Ráðgjafi í Kvennaathvarfinu í Reykjavík

Samtök um kvennaathvarf leita eftir ráðgjafa

Kvennaathvarfið er einstakur vinnustaður þar sem ríkir mikil samstaða og einhugur um að þjónusta vel konur og börn sem flýja þurfa heimili sín sökum ofbeldis. Hlutverk ráðgjafa er að tryggja samfelldan stuðning og utanumhald um mál kvenna sem dvelja í athvarfinu. Slíkt utanumhald felur m.a. í sér að veita ráðgjöf hvað varðar ofbeldi í nánum samböndum, veita stuðning við næstu skref, tengja konu við þau úrræði sem í boði eru og vera í samskiptum við fagaðila. Hlutverk ráðgjafa er almennt að aðstoða þolendur ofbeldis í nánum samböndum á sinni vegferð með því að tryggja að þær fái nauðsynlegan stuðning og stuðla að því að þær finni til öryggis á meðan á dvöl í athvarfinu stendur.

Um er að ræða fullt starf í dagvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Regluleg ráðgjafaviðtöl við konur sem dvelja í Kvennaathvarfinu. 
  • Utanumhald og eftirfylgni með málum kvenna. 
  • Ráðgjöf í gegnum vaktsíma. 
  • Taka á móti konum og börnum sem koma í dvöl. 
  • Eftirfylgni með málum barna þegar við á og þá í samvinnu við rágjafa barna. 
  • Stuðla að virkni og vellíðan í athvarfinu. 
  • Samskipti við fagaðila og stofnanir varðandi mál kvenna. 
  • Tryggja gott upplýsingaflæði og samstarf við aðrar starfskonur Kvennaathvarfsins. 
  • Taka þátt í starfsþróun innan athvarfsins, en Kvennaathvarfið leitar sífellt leiða til að koma betur á móts við þarfir kvenna og barna. 
  • Sækja ráðstefnur, námskeið og þjálfun um ofbeldi í nánum samböndum og stuðning við þolendur. 
Menntunar- og hæfniskröfur

Góð þekking á eðli og birtingarmyndum ofbeldis í nánum samböndum. 

Reynsla af ráðgjöf og stuðningi við fólk í viðkvæmri stöðu. 

Þekking á þeim úrræðum, fagaðilum og stofnunum sem koma að málum þolenda ofbeldis í nánum samböndum. 

Mikil færni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki er kemur að því að koma á móts við þarfir kvenna og barna. 

Menntun sem nýtist í starfi, s.s. félagsráðgjöf, sálfræðimenntun eða áfallafræði. 

Viðamikil reynsla á sviði þjónustu til þolenda ofbeldis er mikill kostur. 

Auglýsing birt5. júní 2026
Umsóknarfrestur15. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjavík, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar