The House of Beauty
The House of Beauty
The House of Beauty

Erum við að leita að þér?

Viltu hjálpa fólki að bæta heilsu sína, lífsgæði og sjálfstraust?

The House of Beauty – heilsu- og líkamsklíník leitar að öflugum einstaklingi í starf heilsuráðgjafa.

Um starfið:

Markmið starfsins er að vera fyrsta snerting nýrra viðskiptavina og hjálpa þeim að finna bestu leiðina að bættri heilsu, auknum lífsgæðum og meira sjálfstrausti með faglegri fræðslu, stuðningi og ráðgjöf.

Viðkomandi tekur á móti einstaklingum, greinir þarfir þeirra, heilsufar og markmið og veitir faglega leiðsögn um þær lausnir sem henta hverjum og einum.

Starfið hentar einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á heilsu, vellíðan og mannlegum samskiptum, hefur ríka þjónustulund og nýtur þess að hjálpa fólki að ná markmiðum sínum.

Við leitum að hlýjum einstaklingi sem:

• Hefur framúrskarandi samskiptahæfileika.

• Á auðvelt með að skapa traust og byggja upp góð tengsl.

• Hefur brennandi áhuga á heilsu, vellíðan og lífsstílsbreytingum.

• Er jákvæður, lausnamiðaður og þjónustulundaður.

• Er skipulagður, sjálfstæður og ábyrgur.

• Nýtur þess að vinna með fólki og hjálpa því að ná markmiðum sínum.

• Hefur framúrskarandi íslensku og ensku kunnáttu í töluðu og rituðu máli.

Starfskjör:

• Um verktakastarf er að ræða með föstum kjörum ásamt árangurs tengingu.


• Starfið er hlutastarf í upphafi með möguleika á auknu starfshlutfalli með þróun starfsins.


• Vinnutími er sveigjanlegur og samkomulagsatriði.


• Frábært tækifæri fyrir einstakling sem vill vaxa með fyrirtækinu til framtíðar.

Ekki er gerð krafa um að umsækjendur þekki inná meðferðir og/eða greiningu á heilsufari fyrirfram.

Réttur einstaklingur fær ítarlega þjálfun, fræðslu og handleiðslu til að geta sinnt starfinu af öryggi, fagmennsku og sjálfstrausti.

Áhugasamir eru hvattir til að sækja um starfið á Alfreð.

Við hlökkum til að heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni:

• Taka á móti nýjum og núverandi viðskiptavinum í ráðgjöf.

• Fara yfir heilsufar, markmið, þarfir og væntingar viðskiptavina.

• Veita fræðslu um heilsu, vellíðan, meðferðir og mögulegar lausnir.

• Veita faglega, heiðarlega og einstaklingsmiðaða ráðgjöf.

• Útbúa tillögur að meðferðar- og heilsuáætlunum.

• Styðja og leiðbeina viðskiptavinum í átt að markmiðum sínum.

• Fylgja viðskiptavinum eftir og veita stuðning á vegferð þeirra.

• Kynna þjónustu og meðferðir klíníkarinnar á faglegan og traustan hátt.

• Vinna náið með meðferðaraðilum og öðru starfsfólki.

• Stuðla að framúrskarandi þjónustuupplifun og langtímasambandi við viðskiptavini.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun og reynsla:

Við leitum fyrst og fremst að einstaklingi með brennandi áhuga á heilsu og vellíðan fólks, framúrskarandi samskiptahæfileika og hæfni til að byggja upp traust sambönd.

Kostur er ef viðkomandi hefur menntun eða reynslu á einhverju af eftirfarandi sviðum:

• Heilsumarkþjálfun eða markþjálfun

• Hjúkrun

• Sjúkraliðun

• Sjúkraþjálfun

• Heilsunuddi

• Annarrar heilbrigðismenntunar

• Íþróttafræði eða íþróttakennslu

• Einkaþjálfunar

• Næringarfræði eða annarra heilsutengdra greina

• Sölu- og/eða ráðgjafastarfa.

Fríðindi í starfi

Við bjóðum:

• Einstakt og fjölbreytt starf í vaxandi fyrirtæki.

• Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á heilsu og lífsgæði fólks.

• Öfluga þjálfun og fræðslu sem gerir þér kleift að sinna starfinu af fagmennsku og öryggi.

• Kennslu á okkar aðferðarfræði, meðferðum, þjónustu og ráðgjafarferlum.

• Tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.

• Sterka liðsheild og jákvætt starfsumhverfi.

• Vinnu á einni af leiðandi heilsu- og líkamsklínikum landsins.

Auglýsing birt4. júní 2026
Umsóknarfrestur21. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Fákafen 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar