

Íslensku mælandi ráðgjafi á Helvetic Clinics í Búdapest
Hefur þú áhuga á að vinna í Búdapest á alþjóðlegum vinnustað?
Helvetic Clinics er stór, nútímaleg og öflug tannlæknastofa í Búdapest. Þangað sækja margir Íslendingar þjónustu í viku hverri, með milligöngu HEI Medical Travel. Við höfum hug á að ráða Íslenskumælandi þjónustufulltrúa á stofuna. Þar starfa nokkrir aðrir þjónustufulltrúar sem tala hin ýmsu tungumál og þjónusta fólk frá mörgum löndum.
Helvetic er góður alþjóðlegur vinnustaður, þar sem Enska er tungumál vinnustaðarins. Launin teljast nokkuð góð miðað við það sem gengur og gerist í Búdapest. Auk góðrar Íslensku og Ensku er kostur að tala fleiri tungumál, sérstaklega einhver Norðurlandatungumálanna. Starfskjör eru að hluta miðuð við fammistöðu og árangur, og fara batnandi eftir því sem meira eru umleikis. Ef þú hefur margt sem flest af því hér er nefnt og telur þig passa í starfið höfum við áhuga á að heyra frá þér!
- Ráðgjöf við fólk sem komið er á Helvetic Clinics að sækja sér tannlæknaþjónustu, aðallega Íslendinga og eftir atvikum fólk frá fleiri löndum til dæmis öðrum Norðurlöndum.
- Framsetning og útlistun áætlana um tannviðgerðir fyrir viðskiptavini/sjúklinga, eftir leiðsögn tannlækna.
- Þýðing Enskra texta um tannlæknaþjónustu yfir á Íslensku þegar tími gefst til.
- Góð grunnmenntun eða háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Gott vald á Íslensku og Ensku er nauðsynlegt. Ungverska og önnur Norðurlandamál er kostur.
- Góðir samskiptahæfileikar og lausnamiðuð nálgun.
- Góð almenn tölvufærni.
- Þokkaleg færni í meðferð talna.
- Kostur er að hafa starfað á tannlæknastofu.
- Ódýr tannlæknaþjónusta
- Leiðbeiningar varðandi það að koma sér fyrir í Búdapest
Íslenska
Enska










