Kjálkaskurðlæknar í Álftamýri
Kjálkaskurðlæknar í Álftamýri
Kjálkaskurðlæknar í Álftamýri

Kjálkaskurðlæknar í Álftamýri auglýsa eftir hjúkrunarfræðingi, geislafræðingi, tanntækni til

Kjálkaskurðlæknar í Álftamýri óska eftir að ráða aðstoðarmanneskju skurðlæknis til starfa með heilbrigðismenntun.

Starfshlutfall er 70-80% eftir samkomulagi. Æskilegt væri að geta hafið störf sem fyrst eða frá og með 4.ágúst.

Starfið er mjög fjölbreytt og felur í sér að aðstoða skurðlækni við aðgerðir, röntgenmyndatökur, sótthreinsun verkfæra, umönnun og samskipti við sjúklinga.

Hæfniskröfur:

  • Þjónustulund, jákvæðni, góð samskiptahæfni og metnaður í starfi

  • Hæfni til að sýna frumkvæði, vinna sjálfstætt ásamt því að vinna með öðrum

  • Geta og áhugi á að vinna undir álagi við spennandi verkefni þar sem enginn dagur er eins

Á stofunni starfa tveir kjálkaskurðlæknar, hjúkrunarfræðingar, svæfingalæknir, geislafræðingur og ritari.

Áhugasamir geta fengið frekari upplýsingar eða sent umsókn á [email protected]


Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Guðmundur Á. Björnsson og Olga Hrönn Jónsdóttir

Auglýsing birt4. júní 2026
Umsóknarfrestur26. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Álftamýri 1-5, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar