Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Heimahjúkrun Norðvestur í nýju og glæsilegu húsnæði

Heimahjúkrun Norðvestur hefur nýlega flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði að Lágmúla 4. Heimþjónusta Norðvestur veitir þjónustu í Vesturbæ, Miðbæ, Háaleiti, Laugardal og Bústaðahverfi.

Við leitum að hjúkrunarfræðingum sem vilja ganga til liðs við okkar frábæra starfsmannahóp. ERT ÞÚ TIL Í SLAGINN?

  • Ert þú atorkumikill hjúkrunarfræðingur í leit að nýjum og ferskum áskorunum?
  • Viltu sinna fjölbreyttum hópi fólks víðsvegar um borgina, þar sem verkefnin spanna allt litróf hjúkrunar?
  • Viltu fá tækifæri til að veita sérhæfða hjúkrunarþjónustu til fólks í borginni og kynnast þeirri fjölbreytni sem starfið býður upp á?
  • Viltu upplifa töfra þess að hjúkra fólki í þeirra eigin umhverfi?
  • Viltu kynnast því hvernig er að starfa við hjúkrun í samþættri heimaþjónustu?
  • Viltu taka þátt í að þróa og innleiða nýjar leiðir til að veita heilbrigðisþjónustu í umhverfi sem tekur sífelldum breytingum?


Ef svarið er JÁ – þá ert þú tilvalinn liðsmaður til að taka þátt í að móta framtíðar heimaþjónustu í breyttu landslagi heilbrigðiskerfisins

Ef þú vilt hoppa á vagninn – skelltu þá inn umsókn!

Við vekjum athygli á kjarasamningum Reykjavíkurborgar og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Hjúkrunarfræðingar í heimaþjónustu sinna margvíslegum verkefnum á sviði hjúkrunar þar sem markmiðið er að fólk og fjölskyldur njóti betri og einstaklingsmiðaðri þjónustu til að styðja við og hámarka heilsu, vellíðan og sjálfstæði.

Reykjavíkurborg er leiðandi í samþættri heimaþjónustu og veitir þjónustu í fremstu röð.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Þekking og reynsla af sjúkraskrárkerfinu SÖGU og RAI mælitækjum æskileg
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Ökuréttindi
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
  • Íslenskukunnátta á bilinu B2-C2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Menningarkort
  • Frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar
  • 36 stunda vinnuvika
  • Fjölskylduvænt starfsumhverfi
Auglýsing birt29. maí 2026
Umsóknarfrestur14. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hjúkrunarfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar