

Hjúkrunarfræðingur í ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu
Viltu vinna á stað þar sem þú færð að hafa raunveruleg áhrif, þróast faglega og vera hluti af öflugu teymi?
Við hjá ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítala leitum að hjúkrunarfræðingi sem vill taka þátt í að efla geðheilbrigðisþjónustu fyrir fólk með fjölþættan og oft flókinn vanda. Við vinnum út frá batamiðaðri nálgun þar sem virðing, traust og einstaklingsmiðuð, heildræn þjónusta eru í forgrunni.
Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna í sérhæfðu, þverfaglegu umhverfi þar sem lögð er áhersla á:
-
starf með skýran tilgang
-
tækifæri til faglegrar þróunar og sérhæfingar
-
öfluga teymisvinnu og handleiðslu
-
sveigjanlegt og lærdómsríkt starfsumhverfi
-
þátttöku í að veita þjónustu sem hefur mikilvægt samfélagslegt hlutverk
-
tækifæri til að bæta lífsgæði fólks
Um starfsemina:
Ferliþjónustan samanstendur af þremur sérhæfðum teymum:
Geðteymi fangelsa: Veitir geðheilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga í afplánun innan fangelsa landsins.
Laufey- nærþjónusta: Þjónusta byggð á hugmyndafræði skaðaminnkunar þar sem lögð er áhersla á að mæta fólki á þeirra eigin forsendum.
Göngudeild réttar- og öryggisgeðþjónustu: Nýtt teymi í mótun sem starfar samkvæmt hugmyndafræði Forensic FACT.
Af hverju þetta starf?
Við leggjum mikla áherslu á:
-
góða þjónustu við notendur sem byggir á gagnreyndum aðferðum
-
góðan starfsanda
-
stöðugar umbætur
-
faglegt og styðjandi starfsumhverfi
Starfið er fjölbreytt, spennandi og gefandi. Um dagvinnu er að ræða en möguleiki er á vöktum í samstarfi við legudeildir geðþjónustu fyrir þau sem þess óska.
Við leggjum áherslu á markvissa og einstaklingsmiðaða starfsaðlögun og styðjum starfsfólk til vaxtar og þróunar í starfi.
Staðan er laus frá 15. júní 2026 eða eftir samkomulagi.
- Þátttaka í þverfaglegu teymi, klínískri meðferð notenda og aðstandendastuðningi
- Málastjórn
- Vaktstjórn og lyfjagjafir ásamt öðrum hjúkrunartengdum verkefnum
- Heldur utan um skipulagningu og framkvæmd verkefna og vinnur samkvæmt stöðluðum verkferlum
- Tekur þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu
- Þjálfun og kennsla hjúkrunarnema
- Starfar samkvæmt öryggisverkferlum deildar
- Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Einlægur áhugi á geðhjúkrun, reynsla af starfi í geðþjónustu er kostur
- Góð samskiptahæfni
- Jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði í starfi
- Stundvísi, áreiðanleiki og öguð vinnubrögð
- Færni til að skipuleggja og forgangsraða verkefnum
- Góð almenn tölvukunnátta og geta til að læra nýjungar
- Góð færni í íslensku og ensku, önnur tungumálakunnátta er kostur
- Gilt ökuskírteini
Íslenska




































