

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á sérhæfðri endurhæfingardeild aldraðra
Við leitum eftir kraftmiklum hjúkrunarfræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar á K1 á Landakoti. Deildin rúmar 18 sjúklinga til sérhæfðrar endurhæfingar. Landakot er staðsett í rólegu og rótgrónu hverfi miðsvæðis í Reykjavík, andinn í húsinu er einstakur og nálægð við mannlíf Miðborgarinnar er kostur eftir góða vinnudaga.
Hér er um spennandi tækifæri að ræða fyrir hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga á stjórnunarstörfum og vilja taka virkan þátt í þróun þjónustu með áherslu á endurhæfingu og aukin lífsgæði einstaklinga eftir bráð veikindi. Viðkomandi þarf að hafa mikla samskiptahæfni og áhuga á að takast á við breytingar.
Sveigjanleiki er í boði varðandi vinnutíma þar sem áhersla er lögð á góð samskipti við samstarfsfólk, skjólstæðinga og aðstandendur.
Landakot er inngildandi vinnustaður, þar sem fjölbreytileiki íslensks samfélags fær að njóta sín og mannvirðing er höfð að leiðarljósi.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust strax eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Ef frekari upplýsinga er óskað má endilega hringja eða senda tölvupóst til Sigurlaugar, deildarstjóra og meira en velkomið að koma í heimsókn og skoða aðstæður á okkar góða vinnustað.
Íslenska



































