

Skrifstofustarf á bráðadagdeild lyflækninga
Laust til umsóknar skrifstofustarf á bráðadagdeild lyflækninga B1 í Fossvogi. Um er að ræða fullt dagvinnustarf sem felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Deildin var opnuð fyrir fjórum árum og er hluti af bráðaþjónustu spítalans. Við sinnum bráðatilfellum, frá bráðamóttöku og frá heilsugæslu, sýklalyfjagjöfum í æð og fleiru. Á deildinni starfar hópur áhugasamra lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða og mikil þróunarvinna í gangi. Miklar breytingar eiga sér nú stað í bráðaþjónustu Landspítala og mikil tækifæri fólgin í að taka þátt í þeim fyrir framsækinn einstakling.
Við sækjumst eftir þjónustuliprum einstaklingi sem er lausnamiðaður, sjálfstæður í starfi, með góða samskiptahæfni og sem á auðvelt með að vinna í teymi.
Ráðið verður í starfið í ágúst 2026. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir.
Enska
Íslenska









































