
DHL Express Iceland ehf
Alþjóða hraðsendingar og fraktsendingar um allan heim í lofti, á sjó, með bílum og lestum. Vöruhúsalausnir, allt frá pökkun til geymslu, póstsendingar um allan heim, sem og aðrar sérhæfðar lausnir á sviði vörustjórnunar - DHL færir þér úrval flutningsleiða og yfirburði heim að dyrum.
Að starfa fyrir DHL þýðir að taka ábyrgð, sigrast á ögrandi áskorunum og vaxa og þroskast sem hluti af fjölbreyttu alþjóðlegu starfsliði.
Nýttu þér margskonar spennandi möguleika á starfsframa til að skila góðum árangri með okkur og vera hluti af stærsta flutningafyrirtæki í heimi.
DHL býður fjölbreytt störf með mikla möguleika á öllum starfsþrepum í öllum heimshlutum. Sem starfsmaður hjá okkur færðu tækifæri til að móta með góðri vinnu í góðum hópi þína eigin framtíð bæði í starfi og leik. Saman myndum við fyrirtæki sem við getum verið virkilega stolt af.

Tollfulltrúi í Keflavík - tímabundin staða
DHL Express Iceland óskar eftir að ráða í stöðu tollfulltrúa í Tolladeild fyrirtækisins á starfsstöð sinni á Keflavíkurflugvelli.
Um er að ræða tímabundið starf til eins árs.
Leitað er að þjónustulunduðum, árangursdrifnum og sjálfstæðum einstaklingi sem er reiðubúinn að takast á við krefjandi verkefni í skemmtilegu alþjóðlegu starfsumhverfi.
Vinnutími er frá 8-16 mánudaga - fimmtudaga og 8-15.15 á föstudögum.
Góð íslensku og enskukunnátta skilyrði.
Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Símsvörun, póstvöktun og að rekja feril sendinga
- Afgreiðsla viðskiptavina í síma og netpósti.
- Stuðningur við tollafgreiðsluferil sendinga og ýmis tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Mjög góð þjónustulund og góðir samskiptahæfileikar
- Mjög góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku og enskukunnátta í máli og riti.
- Hæfni til að bregðast við og leysa úr erfiðum málum
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og metnaður
- Hæfni og geta til að vinna undir álagi
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur hádegisverður
Auglýsing birt18. maí 2026
Umsóknarfrestur24. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Fálkavöllur 17, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaFrumkvæðiMetnaðurSamskipti í símaSjálfstæð vinnubrögðVinna undir álagiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Bókunarfulltrúi - Sölu & Markaðssvið
Íslandshótel

Vaktstjóri á þjónustuborð í fullt starf!
BAUHAUS slhf.

Verkefnastjóri á alþjóðaskrifstofu LHÍ
Listaháskóli Íslands

Verkefnisstjóri á skrifstofu Hugvísindasviðs
Hugvísindasvið

Verkstæðismóttaka
Toyota

Þjónustufulltrúi óskast í Borgarnesi
Vörumiðlun ehf

Sumarstarf í söluteymi
Teya Iceland

Afgreiðslustjóri í Krónunni Lindum
Krónan

Þjónustufulltrúi Skaftafelli - sumarstarf
Náttúruverndarstofnun

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Sérfræðingur í framlínu LSR
LSR - Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Hönnuður í fjölbreytt verkefni á sviði samgangna
Hnit Artelia