Hnit Artelia
Hnit Artelia
Hnit Artelia

Hnit Artelia - Hönnuður í fjölbreytt verkefni á sviði samgangna

Við hjá Hnit Artelia, leitum að hönnuði í fjölbreytt verkefni á sviði samgangna. Verkefni á sviði samgangna geta innifalið hönnun vega, gatna, stíga og veitukerfa, ásamt gerð útboðsgagna og áætlana.

Helstu verkefni og ábyrgð

Það sem felst í starfinu:

Helstu verkefni sem þú sem hönnuður samgangna munt fást við:

·         Koma að og/eða stýra fjölbreyttum verkefnum, stórum sem smáum, sem geta varðað undirbúning verkefna, hönnun og framkvæmd útboðs, eftirfylgni verkefna á framkvæmdatíma og/eða viðhalds og reksturs samgöngumannvirkja.

·         Sem dæmi um verkefni má nefna; hönnun vega og breytingar á vegum og umhverfi, hönnun á götum og veitum í hverfum, hönnun á breytingum á núverandi götum t.d. vegna Borgarlínu, gerð vinnusvæðamerkinga, magntaka og gerð verklýsinga

·         Samræma vinnu við ólík fagsvið, innan og utan Hnit Artelia.

·         Tryggja framvindu verkefna, stýra gæðum, og stuðla að ánægju viðskiptavina og notenda.

Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem

·         Býr að menntun á sviði verkfræði eða tæknifræði, M.Sc. gráða æskileg.

·         Hefur þekkingu og reynslu af sambærilegum verkefnum og greint er frá hér að ofan

·         Býr yfir mikilli samskipta, skipulags- og samvinnuhæfni

·         Hefur jákvætt viðhorf, frumkvæði og lausnamiðaða nálgun

·         Hefur sjálfstæð og öguð vinnubrögð

·         Býr yfir góðri kunnáttu í íslensku eða ensku; kunnátta á norðurlandatungumáli er kostur

Auglýsing birt14. maí 2026
Umsóknarfrestur7. júní 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Háaleitisbraut 58-60 58R, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar