
Starf á Skrifstofu HRFÍ
Hundaræktarfélag Íslands (HRFÍ) leitar að jákvæðum, skipulögðum og þjónustulunduðum einstaklingi í fjölbreytt og skemmtilegt starf.
Við leitum að öflugum liðsfélaga sem hefur gaman af samskiptum við fólk, er nákvæmur í vinnubrögðum og hefur áhuga á að taka þátt í fjölbreyttri starfsemi félagsins.
Starfið felur í sér daglega móttöku og þjónustu við félagsmenn, aðstoð við skipulagningu og framkvæmd viðburða, skráningu og umsýslu gagna í kerfum félagsins ásamt umsjón með samfélagsmiðlum.
• Móttaka og þjónusta við félagsmenn og aðra sem leita til félagsins.
• Símsvörun, tölvupóstsamskipti og almenn skrifstofustörf.
• Aðstoð viðburðastjóra við undirbúning, skipulagningu og framkvæmd sýninga og annarra viðburða.
• Skráning, uppfærsla og umsýsla gagna í upplýsingakerfum félagsins.
• Umsjón með samfélagsmiðlum, gerð og birting efnis.
• Önnur tilfallandi verkefni í daglegum rekstri félagsins.
• Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni.
• Skipulögð, sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð.
• Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný upplýsingakerfi.
• Reynsla af samfélagsmiðlum og einfaldri efnisgerð.
• Góð íslensku- og enskukunnátta.
• Frumkvæði, sveigjanleiki og hæfni til að vinna í teymi.
• Reynsla af skrifstofustörfum, skráningarvinnu eða viðburðahaldi er kostur.
• Áhugi á hundum og starfsemi Hundaræktarfélags Íslands er mikill kostur.
Íslenska
Enska










