
Wise lausnir ehf.
Wise er alhliða upplýsingatæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, ráðgjöf og innleiðingu á breiðu úrvali viðskipta- og rekstrarlausna sem hjálpa fyrirtækjum að skara fram úr, mæta áskorunum og grípa ný tækifæri.
Lausnaframboð okkar samanstendur af hýsingar- og rekstrarþjónustu, öryggislausnum og heildstæðum viðskiptalausnum fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög.
Hjá Wise starfa tæplega 200 sérfræðingar í Reykjavík, á Akureyri og í Litháen.
Við erum fjölbreyttur hópur fólks sem eigum það sameiginlegt að brenna fyrir upplýsingatækni, nýsköpun og árangri viðskiptavina.
Wise er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur vinnustaður. Við leggjum áherslu á hvetjandi starfsumhverfi með markvissri fræðslu og þjálfun, að starfsfólki líði vel í vinnunni og að starfsandi sé eins og best verður á kosið. Jafnframt er boðið upp á samgöngu- og heilsustyrk til starfsmanna.
Fyrirtækið býður upp á samkeppnishæf laun og hlaut jafnlaunavottun 2021 og viðurkenningu FKA Jafnvægisvogarinnar 2022.

Fulltrúi starfsánægju og skrifstofu
Góður vinnustaður gerist ekki af sjálfu sér
Á bak við hvern góðan vinnustað er manneskja sem hugsar vel um fólkið og passar að hlutirnir gangi snurðulaust fyrir sig. Hún sér til þess að nýtt samstarfsfólk fái hlýjar móttökur, að starfsfólki líði vel á skrifstofunni, að viðburðurinn verði eftirminnilegur, að ferðin sé bókuð og að fundarherbergið sé klárt. Við leitum að þeirri manneskju.
Um starfið
Í þessu starfi verður þú manneskjan sem fólkið okkar leitar til og tekur virkan þátt í að móta vinnustaðamenningu Wise. Þú vinnur náið með framkvæmdastjóra fjármála og færð að móta starfið með okkur. Um er að ræða starf á starfsstöð í Reykjavík.
Helstu verkefni og ábyrgð
Það sem þú munt gera
- Taka vel á móti nýju fólki og fylgja því eftir fyrstu vikurnar í starfi
- Efla starfsánægju og vellíðan á vinnustaðnum
- Vera fyrsti tengiliður starfsfólks vegna aðstöðu og daglegs umsjónar skrifstofunnar
- Skipuleggja viðburði og félagslíf, bæði stóra og smáa, innanhúss og utan
- Sjá um innri upplýsingamiðlun til starfsfólks
- Taka þátt í flutningum í nýjar höfuðstöðvar og koma nýrri aðstöðu í gott horf
- Halda utan um samskipti við þjónustuaðila á sviði aðstöðu, heilsu og fræðslu
- Styðja við ráðningar: auglýsingar, samskipti við umsækjendur og bókun viðtala
- Sækja um styrki, t.d. fræðslustyrki
- Annast vinnuferðir starfsfólks, frá bókun til heimkomu
Menntunar- og hæfniskröfur
Þú ert líklega rétta manneskjan ef þú…
- hefur reynslu af sambærilegu starfi, t.d. á sviði skrifstofustjórnunar eða mannauðsmála
- hefur einlægan áhuga á fólki og vellíðan á vinnustað
- átt auðvelt með samskipti og nýtur þess að hjálpa öðrum
- býrð yfir góðri skipulagshæfni og fylgir verkefnum eftir til enda
- sýnir frumkvæði og heldur ró þinni þótt mikið sé um að vera
- sýnir nærgætni og fagmennsku í meðferð trúnaðarupplýsinga
- hefur gott vald á íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli
Auglýsing birt4. nóvember 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Gagnaöflun - spyrill
Hagstofa Íslands

Sérfæðingur í bókhaldsdeild
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Sölumaður/skrifstofa dagvinna - framtíðarstarf - Only Icelandic speaking!
ATC

Innkaup og þjónusta
Rubix Ísland ehf

Fulltrúi í þjónustu við netverslanir
TVG-Zimsen

Þjónustufulltrúi
Atlantsolía

Verkefnastjóri
KÓRÍS, Kórasamband Íslands

Sérfræðingur á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd
Vinnumálastofnun

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á bæklunarskurðdeild AB5 Fossvogi
Landspítali

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Aðstoðamaður á dýraspítala
Dýralæknar Sandhólaferju ehf.

Starfsmaður í afgreiðslu
Vélanaust