

Gagnaöflun - spyrill
Hagstofa Íslands leitar að þjónustuglöðum og kraftmiklum einstaklingi sem hefur ánægju af samskiptum í hlutastarf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst að hafa samband símleiðis við þátttakendur í rannsóknum og afla gagna með viðtölum, auk annarra tilfallandi verkefna við skráningu gagna og eftirfylgni með gagnaöflun frá lögaðilum fyrir hagtölur Hagstofunnar. Mikilvægt er að viðkomandi geti átt árangursrík samskipti við gagnaveitendur og gott samstarf við starfsfólk Hagstofunnar, enda eru gögn hjartað í starfsemi stofnunarinnar.
Hæfniskröfur
-
Eiga auðvelt með samskipti við fólk í gegnum síma og hafa ánægju af þeim
-
Farsæl starfsreynsla af spyrlastörfum eða framlínuþjónustu
-
Stúdentspróf er kostur
-
Mjög góð samstarfs- og samskiptafærni
-
Nákvæm, vönduð og öguð vinnubrögð
-
Góð almenn tölvukunnátta
-
Góð íslensku- og enskukunnátta, pólska eða önnur tungumál er kostur
-
Hæfni til að vinna í hóp og sjálfstætt
-
Mikið frumkvæði til verka
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Um er að ræða tímabundna ráðningu til árs með möguleika á framlengingu, 50% starfshlutfall og er vinnutími frá 10:30 - 15:00 mánudaga til fimmtudaga. Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Allir sem telja sig hæfa í starfið eru hvattir til að sækja um óháð kyni og uppruna. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Hagstofu Íslands við ráðningar í störf.
Vertu hluti af liðsheild sem vinnur að því að skapa traustar upplýsingar fyrir samfélagið.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 19.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Jóda Elín V. Margrétardóttir
Mannauðsstjóri
Tölvupóstur: [email protected]
Íslenska
Enska
Pólska










